Frjáls verslun - 01.02.1978, Page 81
Kjörís:
25 - 30 teg, af is framleiddar
— framleiðslan seld um allt land
Þegar Frjáls verslun heimsótti
ísgerðina Kjörís í Hveragerði
fyrir skömmu, stóð fram-
kvæmdastjórinn Hafsteinn
Kristinsson í miðjum hópi
manna sem Iögðu flísar á gólf.
Engar vélar voru í gangi og
ekki verið að framleiða neinn
ís.
— Þú hefðir átt að koma svo
sem viku seinna sagði Haf-
steinn. — Þá hefði allt verið
í fullum gangi og búið að gera
fínt. Við notuðum okkur þenn-
an rólegasta tíma ársins til að
gera smá endurbætur á hús-
næðinu.
ÚR OSTUM í ÍS
Hafsteinn var fyrst spurður
að þvi, hvernig hefði staðið á
því að hann og félagar hans
réðust út í ísgerð. — Forsagan
er sú, sagði Hafsteinn, — að
við vorum með ostagerð sem
gekk stirðlega. Þetta var mjólk-
urbúsfyrirkomulag og við
þurftum að taka við 'þeirri
mjólk sem bændurnir fram-
leiddu, hversu mikið sem seld-
ist af osti. Þarna gerðist það
sem gjarnan gerist með fyrir-
tæki. Það er auðvelt að koma
þeim af stað, en eftir svona 6
mánuði fer að reyna á hvort
neytandinn kaupir framleiðsl-
una aftur og fyrstu afborganir
fara að koma. Það er algengt
að fyrirtæki breyti til eftir 3—
4 ár. Einmitt þetta gerðist með
ostinn og okkur datt í hug að
fara út í ísframleiðslun. Þetta
þótti brjálæðisleg hugmynd og
menn komu til mín með þann
ásetning að hafa mig ofan af
þessari vitleysu. En viðtökur
voru góðar og þetta ihefur allt
saman blessast. Við byrjuðum
með 2 tegundir af ís, en erum
núna með eitthvað á milli 25
og 30.
Hafsteinn Kristinsson.
500 FERMETRA NÝTT
HÚSNÆÐI
— Við 'höfum reynt að fara
rólega í þetta, sagði Hafsteinn,
— og miðað við að geta hven-
ær sem er bakkað út úr þessu
án þess að prívat eignir okkar
væru í voða. Við byrjuðum á
því að kaupa gamlar vélar, en
höfum smám saman verið að
endurnýja þær. Húsnæðið var í
upphafi óhentugt fyrir ísgerð,
enda ekki byggt til þeirra nota.
Við höfum smám saman verið
að breyta því. í fyrra byggðum
við 500 fermetra viðbótarhús-
næði og núna er verið að flísa-
leggja gólf og stækka frysti-
klefann. Þetta er tekið svona
skref fyrir skref.
Kjörís hf. selur framleiðslu
sína út um allt land, — Við er-
um með 4 frystibíla, sem eru í
stöðugum flutningum, sagði
Hafsteinn. — Á Akureyri og í
Vestmannaeyjum höfum við
dreifingaraðila, sem taka við
vörunum frá okkur í frysti-
klefa og dreifa henni síðan i
verslanir. Aðalmarkaðurinn er
í Reykjavík að sjálfsögðu og
eru bílarnir mikið í förum
þangað.
ísinn frá Kjörís hf. er frá-
brugðinn öðrum ís á markaðn-
um að því leyti, að í honum er
jurtafeitir í stað smjörfeiti. —
Að öðru leyti er þetta sama
formúlan og er við alla ísfram-
leiðslu sagði Hafsteinn. — Við
höfuð verið að þróa þessar
blöndur hjá okkur sjálfum, en
við erum í sambandi við er-
lenda aðila í sambandi við form
og annað. Mest eru það danskir
aðilar. Við höfum líka verið að
velta fyrir okkur að fara í
fjölbreyttari framleiðslu, en
með stækkun húsnæðisins gefst
okkur möguleiki á því og alla
vega rnunum við bæta við ein-
hverju af vélum. Við erum
núna með 12—14 starfsmenn
í verksmiðjunni og 2—3 bíl-
stjóra.
DAGLEGUR EFTIRRÉTTUR
Hafsteinn sagði að athyglis-
vert væri að skoða verðlagsþró-
unina á ís gegnum árum. —
Þegar við byrjuðum 1966, sagði
hann, — kostaði 1 líter af ís 55
krónur út úr búð. Þá var tíma-
kaup verkafólks hjá okkur ná-
kvæmlega það sama. Núna
kostar líterinn af ís 360 krónur
út úr búð en tímakaupið er 770
krónur. Þetta er auðvitað hag-
stæðari samanburður fyrir
neytandann og þetta er líka
æskileg þróun. Við viljum
stefna að því að ísinn nýtist
meira sem daglegur eftirréttur
en lúxusvara eins og hann var
áður. Og það virðist allt stefna
í þá átt.
— Það má segja að þetta hafi
gengið nokkuð vel hjá okkur
hingað til, sagði Hafsteinm En
hversu bjartsýnn maður getur
verið við fyrirtækjarekstur i
dag er annað mál.
FV 2 1978
81