Frjáls verslun - 01.02.1978, Side 87
málaði hann gull sín í öllum
regnbogans litum.
Athvarf Jóhannesar Kjarvals
á unglingsárum hans var sjó-
mennskan á skútunum og sög-
ur fara af því að skútukarlarn-
in hafi verið þeir fyrstu sem
sáu ástæðu tii þess að hlúa að
listhneigðinni hjá hinum unga
sjómanni og kom það m.a. fram
í því að skipsfélagar hans gáfu
honum tíma til þess að sinna
tjáningarþörf sinni með blýant
og pensil í hönd.
Þótt margar þjóðsögur séu til
um meistara Kjarval þá segja
verk hans mesta sögu um snilli
hans, snilli sem hefði fært mál-
ara stórþjóðar heimsnafn. En
Kjarval var ekki umhugað um
frægð á fjölum heimsins. Hann
var islenzkt náttúrubarn og
sinnti kalli sínu með því að
gera ísland stærra í verkum
sínum.
Þær myndir sem nú eru
sýndar í Kjarvalssal eru frá
hinum ýmsu skeiðum málarans
og gefa skemmtilega mynd af
hinum eina sanna Kjarval.
Kjarvalsstaðir:
Sýning á vinnu vangefinna
Dagana 18.—27. marz verður
lialdin í Kjarvalsstöðium sýn-
ingin Viljinn í verki en þar
verða sýnd verk sem félagar i
röðum vangefinna á Islandi
hafa unnið um skcið, en verk-
unum er safnað saman víðs veg-
ar að af landinu. A vegum
Styrktarfélags vangefinna hef-
ur verið unnið mjög merkilegt
starf á þessum vettvangi um
árabil, en sýning þessi er hald-
in í tilefni af 20 ára afmæli
Styrktarfélags vangefinna í
Reykjavík. Félagið var stofnað
23. marz 1958 og var fyrsta fé-
lagið sinnar tegundar á land-
inu.
Auk afmælisins marka þessi
ár nokkur tímamót í sögu félags-
ins, en á sl. ári voru landssam-
tökin Þroskahjálp stofnuð af
19 aðildarfélögum, sem vinna
að þessu málefni.
Frá stofnun félagsins og fram
að þeim tíma starfaði félagið,
sem landsfélag.
Afmælisnefnd, sem starfað
hefur á vegum félagsins varð
fljótlega sammála um að af-
mælisárið skyldi notað til kynn-
ingar á málefninu fyrir almenn-
ing.
Tilgangurinn með þessari
sýningu er sá að reyna að sýna
þróunina á málefninu í landinu
s.l. 20 — 30 ár í máli og
myndum með sýnishorni af
Starf að
málefnum
vangef-
inna og
þroska-
heftra er
mikilvægt
og aðkall-
andi í ís-
lensku
þjóðfélagi.
vinnu vistfólks og öðrum upp-
lýsingagögnum, sem unnt hef-
ur verið að nálgast.
Ennfremur verður kynning
á bókum og kvikmyndum um
málefnið. Svo og verður dag-
skrá þar sem ýmsir listamenn
munu koma fram.
Einnig verða á sýningunni
seldir handunnir munir frá öll-
um heimilum vangefinna á
landinu.
Þetta er fyrsta sýning sinnar
tegundar hér á landi og er það
von aðstandenda og ósk að hún
veki verðskuldaða athygli, eins
og samskonar sýningar hafa
gert hjá okkar nágranna þjóð-
um.
Starf að málum vangefinna
og þroskaheftra er mikilvægt
og aðkallandi í íslenzku þjóðfé-
lagi og það kostar mikla vinnu
að sinna þeim sem ekki mega
sín eins og aðrir þegnar þjóðfé-
lagsins.
Að rétta hjálparhönd í starfi
meðal vangefinna skiptir öllu
máli, en sýning úr starfi þeirra
í máli og myndum auk muna,
verður í Kjarvalsstöðum til 28.
marz.
FV 2 1978
87