Frjáls verslun - 01.03.1978, Qupperneq 21
lýðræðis. í raun og veru er
flokkurinn í grundvallaratrið-
um stalínískur, mjög agaður,
lokaður og miðstýrður frá
æðstu valdstjórninni.
# Ekki tilbúnir að
deila völdum
Á sama tíma og franskir
kommúnistar hafa haldið því
fram, að þeir væru óháðir
Moskvuvaldinu, hafa þeir verið
meiri fylgjendur sovézkrar ut-
anríkis- og varnarmálastefnu
en nokkru sinni. Eftir kosning-
arnar hefur komið berlega í
ljós, að takmark kommúnista
er að brjóta sósíalistana á bak
aftur og gera kommúnistaflokk-
inn að nýju að hinu leiðandi
afli vinstri manna. Kommún-
istar eru ekki reiðubúnir að
deila völdum sem veikari aðili
í samstarfi við sósíalista.“
Með þessu hefur að miklu
leyti verið skýrt, af hverju
kommúnistar framfylgdu
stefnu, sem gat ekki leitt til
annars en ósigurs vinstra sam-
bandsins — og hvers vegna
þátttaka flokksins í ríkisstjórn
í Frakklandi er svo fjarlæg.
Þótt óvænt þróun í frönsk-
um stjórnmálum valdi vestræn-
um leiðtogum áhyggjum, geta
þeir þó útilokað möguleikann á
ríkisstjórnaraðild kommúnista
um skeið.
# Annaft ástand á
Ítalíu
Á Ítalíu var álitshnekkir
kommúnista allt annars eðlis
og gefur andkommúnistum í
öðrum vestrænum ríkjum ekki
neinar sérstakar vonir. Flokk-
urinn fékk ekki sæti í ríkis-
stjórn kristilegra demókrata
eins og hann sóttist eftir, held-
ur þurfti hann að sætta sig við
það hlutverk eitt að tryggja
stjórninni stuðning á þingi.
ítalskir kommúnistar sækjast
eftir málamiðlun — samsteypu-
stjórn hægri og vinstri flokka,
kristilegra demókrata og komm-
únista. í kosningunum 1976
munaði örmjóu að kommúnistar
tækju við af kristilegum demó-
krötum.
Fréttamaður U.S. News í Róm
segir:
„Það hefur runnið upp fyrir
ítölskum kommúnistum, að því
nær sem þeir eru því að kom-
ast á valdastólana, þeim mun
torsóttari verður framrásin.
Síðustu aðgerðir þeirra hafa
orðið til að stappa stálinu frek-
ar í harðlínumenn meðal kristi-
legra demókrata en jafnframt
hafa æ fleiri ungra vinstri
manna sakað kommúnista um
svik við málstað byltingarinnar.
Leiðtogar kommúnista óttast nú
að glata þeirri stöðu, sem þeir
hafa öðlazt í kosningasigrum
síðustu ára. Ein ástæðan: Inn-
ritun nýrra félaga í ungmenna-
samtök þeirra hefur dregizt
mikið saman. Önnur: Flokkur-
inn hefur ekki lengur orð á sér
fyrir framkvæmdasemi og á-
byrga stjórnun, sem hefur fært
honum mikið fylgi. Borgar-
stjórar úr kommúnistaflokkn-
um eiga nú í miklum erfiðleik-
um með að stjórna sumum
stærstu borgum Ítalíu og þar
sem vandamálin eru mest.
# „Ábyrgur”-flokkur
áf ram ?
Nú reynir hins vegar fyrst á
Evrópukommúnismann svokall-
aða á Ítalíu. Flokkurinn hefur
tekið á sig ábyrgð á viðureign
við efnahagsvandann, minnk-
andi kaupmátt, minni fjárveit-
ingu til hallareksturs opinberra
fyrirtækja og skipulagningu
herferðar gegn hryðjuverka-
mönnum, sem vilja kollvarpa
ríkinu.
Enginn ábyrgur stjórnmála-
skýrandi í Róm heldur því
fram, að hægt verði að halda
kommúnistum þar utan stjórn-
ar í hið óendanlega, ef þeir á
annað borð geta varðveitt þann
orðstír sinn að vera „ábyrgir".
Sumarleyf ■:
Að koma
ekki
þreyttur
úr
sumarfríi
Hvað gera stjörnendur
■ útlöndum í orlofi
sínu?
Það er því miður ekki svo fá-
títt að fólk komi þreyttara úr
sumarfríinu en það var í upp-
hafi þess. Hvernig koma má í
veg fyrir slíkt veit sennilega
enginn með vissu, en ef til vill
má eitthvað læra af þeim mönn-
um, sem árum saman tekst að
stjórna stærstu fyrirtækjum, án
sjáanlegrar streytu.
Meðal stjórnenda stærstu
fyrirtækja Bandaríkjanna eru
sumarleyfi í tengslum við golf,
tennis, siglingu eða stangveiði,
greinilega vinsælust. Allur
galdurinn virðist vera falinn í
því að kjósa sér sumarleyfi sem
maður sjálfur hefur áhuga fyr-
ir, en láta ekki fjölskyldu eða
vini þröngva sér til að ferðast
til staða, eða taka sér fyrir
hendur eitthvað, sem maður
hefur ekki sjálfur löngun til.
Til þess að reyna að komast
til botns í málinu var leitað til
Dr. Alan A. McLean, sem er
forstjóri heilbrigðismáladeildar
IBM-fyrirtækisins, en hann er
jafnframt þekktur iðnaðarsál-
fræðingur.
FV 3 1978
21