Frjáls verslun - 01.03.1978, Qupperneq 35
Geirs Hallgrímssonar greiða í
reiðufé 9,768 milljón dollara
(2476 m. kr.), Elkem-Spiger-
verket 5,624 milljón dollara
(1425,7 m. kr.) en tækniþekk-
ing og reynsla Elkem-Spiger-
verket er lögð að jöfnu við
2,368 milljón dollara (600.3
m. kr.), en alls mun Elkem-
Spigerverket fá greitt 3,2 millj-
ónir dollara fyrir tækniframlag
sitt.
ORKUSALAN
Gert er ráð fyrir því að raf-
magnsverð til Járnblendifélags-
ins hf verði upphaflegt orku-
verð í bandaríkjamillum á
kWh., en það var 5—6.2 mill
fyrstu 8 árin (mill er þúsund-
asti partur úr dollar), haldist
óbreytt sem lágmarksverð, en
fyrri verðhækkunarreglur raf-
magnssamningsins voru felldar
niður og í stað þeirra tekið
upp nýtt orkuverð í norskum
aurum. Það verð verður síðan
endurskoðað á 5 ára fresti og
leiðrétt eftir sömu reglum og
gilda um rafmagnsverð til orku-
freks iðnaðar í Noregi eftir
samningum gerðum samkvæmt
reglum norsku ríkisrafveitn-
anna frá 1962 til 1972. Greitt
verður fyrir orkuna í norskum
gjaldmiðli í stað bandarísks.
Orkuverðið er 3,5 n. aurar á
kWh en það samsvarar 6.61
mill og er sem næst það sama
og tók gildi í Noregi hinn 1.
júlí 1977. Frá og með 1. júlí
1982 mun Járnblendifélagið
greiða til viðbótar þessu verði
0.5 n. aura á kWh (ssr. ca.
0,94 mill) og mun sú viðbót
ekki sæta verðhækkun á samn-
ingstímanum. Samningstíminn
er 20 ár. Þegar litið er á þessa
samninga með hliðsjón af þeim
fyrri sem gerðir voru við Union
Carbide, munu tekjur Lands-
virkjunar af orkusölunni
hækka verulega á fyrstu starfs-
árum verksmiðjunnar, en vænt-
anlega verða nokkru lægri á
síðustu árum samningstímans.
Samkvæmt áætlum Landsvirkj-
unar munu heildartekjur yfir
samningstímann ekki verða
lægri en orðið hefði eftir samn-
ingnum við Union Carbide.
Blikksmiðja Hafnarfjarðar hefur frá því árið
1958 framkvæmt allskonar blikksmiðavinnV.
Setjum upp og smíðum lofthita og loftræsti\
kertf; auk margs fleira. \ ,
kksmiðja Hafaarfjar
jriraut 39 Sími 50421 m
FV 3 1978
35