Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 39
„Vísir í örari vexti en nokkurt
annað dagblað hér á landi”
Kætt vi5 Hörð Einarsson, stjórnarformann Reykjaprents og
Davíð Guðmundsson, framkvæmdastjóra
Stjórnarformaður Revkjaprents hf. er Hörður Einarsson lögfræð-
ingur og tekur hann virkan þátt í daglegum störfum fyrirtækis-
ins ásamt framkvæmdastjóranum Davíð Guðmundssyni. Þeir svör-
uðu nokkrum spurningum F.V. og fyrsta spurningin var hvernig
fjárhagsleg staða fyrirtækisins væri í dag.
Hörður og Davíð: — Fjár-
hagsstaða Reykjaprents í dag
er allgóð miðað við íslenzk fyr-
irtæki. Reykjaprent er ekkert
stórfyrirtæki, en það stendur
mjög vel eignalega og fjárhags-
staðan er traust. Fyrirtækið
hefur nú rétt við eftir það á-
fall, sem það óneitanlega varð
fyrir fyrst eftir að ágreiningur
kom upp innan þess 1975 og
leiddi til stofnunar Dagblaðs-
ins, og vel það.
F.V.: — Hversu alvarlegt var
áfallið?
HE-DG: — Fyrstu 3—4 mán-
uðina eftir að Dagblaðið kom
út tapaði Vísir milli 15—20%
heildaráskrifta og auglýsinga-
magn minnkaði nokkuð. Eftir
þetta fyrsta timabil kom síðan
12 mánaða tímabil óbreyttrar
stöðu, sem notað var til að
vinna að gagnaðgerðum og á-
ætlanagerð. Upp úr áramótum
1977 byrjaði síðan uppgangs-
tími fyrir blaðið, sem staðið
hefur óslitið fram til þessa og
í dag hefur upplag blaðsins
aukizt rétt um 50% og Vísir
hefur aldrei fyrr haft jafn mik-
inn áskrifendafjölda og auglýs-
ingamagnið meira en nokkru
sinni fyrr. Sala blaðsins í dag
er miklu jafnari, sem stafar af
miklu fleiri áskrifendum. Vísir
er nú að okkar áliti í miklu
örari vexti en nokkurt annað
íslenzkt dagblað.
F.V.: — Var fyrirtækið i
hættu á þessum tíma?
HE-DG: — Það var aldrei í
hættu, en ástandið var erfitt
þar til hreyfingin upp á við
byrjaði. Það jók einnig á erfið-
leikana að á þessum tíma fengu
blöðin ekki heimild frá verð-
lagsyfirvöldum til eðlilegrar
hækkunar áskrifta og auglýs-
inga.
F.V.: — í hverju voru hclztu
aðgerðir fólgnar?
HE-DG: — Meginverkefnið
var í fyrstu að koma á stöðug-
leika í rekstrinum og stemma
stigu við hinni neikvæðu þró-
un. Gripið var til aðhaldsað-
gerða varðandi vinnulaun og
pappír, enda þessir liðir lang-
mikilvægustu kostnaðarliðirnir
í rekstri dagblaðs. Allt kapp
var lagt á að nýta upplagið eins
vel og kostur var á. Mannskap
á ritstjórn var haldið í horfinu
og strax ráðið fólk í stað þess,
sem fór yfir á Dagblaðið. Við
vorum heppnir og fengum góða
blaðamenn, betri en þá sem
fóru og ritstjórn og útgefendur
lögðust á eitt um að standa
vörð um blaðið. Blaðið var
stækkað að blaðsíðutali án þess
að fjölgað væri á ritstjórn og
unnu blaðamenn frábært starf.
F.V.: — Barðist Vísir fyrir
lífi sínu?
HE-DG: — Vísi var sýnt til-
ræði, en hann var aldrei í lífs-
hættu. Langstærstur hluti á-
áskrifenda hélt tryggð við blað-
ið, sem sést berlega á því hve
tiltölulega fáir sögðu því upp
og í dag hefur verulegur hluti
þeirra á ný gerzt áskrifendur.
Þetta hefur auðvitað komið til
af því að Vísir hefur að undan-
förnu smám saman orðið miklu
meira blað. Það er orðið lifandi
og áreiðanlegt fréttablað. Það
hefur verið stækkað. Helgar-
blaðið okkar hefur notið mik-
illa vinsælda, en fyrst og fremst
má þakka aukninguna að Vísir
er orðinn alhliða og traustur
upplýsingamiðill. Við erum
sannfærðir um að sú viðbót,
sem við höfum fengið af áskrif-
endum sé varanleg.
F.V.: — Það getur varla far-
ið milli mála að áskrifendaget-
raunin hlýtur að hafa dregið
að áskrifendur. Hvað leggið þið
til grundvallar, er þið hleypið
9 milljón króna getraun af
stað?
HE-DG: — Ákvarðanatakan
var einfaldlega byggð á mark-
aðsþekkingu. Við gerðum okk-
ur grein fyrir að enn var fyrir
hendi verulegur lausasölumark-
Það er ekki annað að sjá en að þeir Hörður og Davíð séu tiltölu-
lega ánægðir með stöðuna.
FV 3 1978
39