Frjáls verslun - 01.03.1978, Síða 58
Fjórðungssamband INIorðlendinga:
\ næstu tíu árum þarf að
útvega 400-500 manns
atvinnu árlega
Lnnið að gerð iðnþróunaráætlunar fyrir IMorðurland
Sveitarfélög á Norðurlandi
hafa með sér samtök sem nefn-
ast Fjórðungssamband Norð-
lendinga og hefur sambandið
skrifstofu á Akureyri. Þegar
Frjáls verslun var á Akureyri
fyrir skömmu var fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bandsins, Áskell Einarsson-
heimsóttur.
— Ef ég á að skilgreina hvað
Fjórðungssambandið er, sagði
Áskell, — þá má segja í stuttu
máli að það sé samstarfsstofnun
allra sveitarfélaga á Norður-
landi á sviði sveitarstjórnar-
mála og allra mála sem snerta
fjórðunginn í heild. Sambandið
heldur þing einu sinni á ári og
á vegum þess starfa 7 milli-
þinganefndir, sem undirbúa
þingið og ýmsa samstarfsfundi.
Það má geta þess að sambandið
hefur engin bein völd, en getur
vissulega haft áhrif. Það er
tengiliður milli fjórðungsins og
ýmissa ríkisstofnana, svo sem
Framkvæmdastofnunar vegna
áætlanagerða um framkvæmdir
hér. í nefndum hjá okkur eiga
sæti menn, sem hafa sérþekk-
ingu á ýmsum sviðum, en ekki
bara sveitarstjórnamenn. Á
ráðstefnum okkar er líka opið
fyrir alla sem áhuga hafa. Með
þessum hætti geta þessir menn
haft áhrif á vissan hátt.
— Þessar nefndir sem ég tal-
aði um, sagði Áskell, — fjalla
um landbúnaðarmál, iðnþróun,
ferðamál, sjávarútveg, þjón-
ustudreifingu, samgöngumál og
menningarmál. Þá kýs fjórð-
ungssambandið einnig í fræðslu-
ráð fjórðungsins. Æðsta stjórn
milli þinga er Fjórðungsráð, en
það er skipað 6 mönnum af
Norðurlandi vestra og 6 af
Norðurlandi eystra og er reynt
að láta hvert hérað hafa sinn
fulltrúa í ráðinu. Nefndirnar
starfa sjálfstætt og án íhlutun-
ar ráðsins. Þetta er sem sagt
jf' 11 i .
Víða er húsnæðisskortur norðanlands, þótt byggingarfram-
kvæmdir séu í fullum gangi. Þcssi nýju raðhús eru á Ólafsfirði.
58
FV 3 1978