Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 77

Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 77
Utvegsbankinn, Siglufirði: Mest aukning í lánum til húsbygginga Tekjuaukning á Siglufirði um 56% miili ára í viðtölum, sem Frjáls verzlun á við forsvarsmenn fyrirtækja úti um land, kemur oft fram að bankaútibú staðarins styðji dyggi- lega við atvinnulífið og sifarfsemi fyrirtækjanna. Til þess að kynn- ast nánar starfsemi eins svona útibús heimsótti Frjáls verzlun Sigurð Hafliðason útibússtjóra Útvegsbankans á Siglufirði. Sig- urður hefur starfað' við útibúið á s.l. ári. ‘ S3 — Utibúunum er í rauninni alveg miðstýrt frá aðalbankan- um, sagði Sigurður. — Okkur eru settar ákveðnar reglur um útlán. Að vísu er ekki settur neinn ákveðinn útlánskvóti, en við verðum að sæta þeim tak- mörkunum sem útlánaþak Seðlabankans setur okkur. Hvað snertir okkar útibú, þá er svolítið tillit tekið til þess, að staða þess er góð gagnvart aðal- bankanum. Ástæða þess að úti- búið hérna hefur orðið sterkt, er m.a. sú, að stærstu atvinnu- fyrirtækin hérna hafa sína lánafyrirgreiðslu úr Landsbank- anum, sem ekki fær nein inn- lán héðan í staðinn. Innlánin koma aftur til okkar, eða í sparisjóðinn. Það hafa heyrst raddir um að útibúið sé að fjár- magna hluti úti um land og Siglfirðingar eigi mikla pen- inga inni fyrir sunnan. Þetta er mesti misskilningur. Þó bæjar- búar eigi kannski inni hjá ein- um banka, þá skulda þeir þess meira í öðrum. Hins vegar eru þessi mál alltaf viðkvæm, ekki síst þegar eftirspurnin eftir peningum er svona mikil. Allir vilja jú skulda. MEIRIHÁTTAR LÁNA- BEIÐNIR FYRIR AÐAL- BANKASTJÓRN — Við höfum enga ákveðna formúlu yfir það hvað við lán- 11 ár, en var settur útibússtjóri Sigurður Hafliðason útibússtjóri. um hverjum aðila hverju sinni. Ef um lán til fyrirtækja er að ræða verður bara að vega og meta eftir því sem skynsamleg- ast þykir, en ef um lánabeiðnir í hærri stærðargráðum er að ræða verðum við að bera þær undir aðalbankastjórnina. — Hér er mest aukning í lán- um til húsbygginga, sagði Sig- urður, — en sjávarútvegurinn tekur alltaf sitt til sín. Flestir smærri útgerðaraðilar og salt- fiskverkunarstöðvar eru í við- skiptum hjá okkur. Við erum í rauninni skikkaðir til að lána í sjávarútveginn, og það verður stundum til þess að ekki er hægt að lána góðum viðskipta- vinum í öðrum greinum. En það sem mér finnst setja svip sinn á fjármál í bænum núna, er hve tekjuaukning fólks er mikil. Á- ætlað er að hún hafi verið um 56% á síðasta ári. Aukin fjár- ráð fólks hafa ýtt af stað fram- kvæmdum eins og húsbygging- um og það veldur aftur meiri eftirspurn eftir lánum. HLAUPAREIKNINGAR ALGENGASTIR Einstaka menn hafa tekið eft- ir þvi, að sárafáir nota ávísana- reikninga á Siglufirði, en hlaupareikningar eru algengir. — Þetta kann að hljóma undar- lega fyrir einhverja, sagði Sig- urður, en þetta hefur bara þró- ast svona og mér finnst þetta í sjálfu sér ekkert athyglisvert. Þetta hefur einfaldað alla fram- kvæmd hjá okkur, því við þurf- um ekki að láta prenta nema eina tegund af eyðublöðum. Þeir fáu sem hafa ávísanareikn- inga nota líka hlaupareiknings- eyðublöð. En það er ekki þar með sagt að allir hafi yfirdrátt- arheimildir, sem hafa hlaupa- reikning. Það hafa einungis fáir og helst fyrirtæki. Að sögn Sigurðar er ekki mikið um að beðið sé um lán til stofnunar nýrra iðnfyrirtækja á Siglufirði. — Hér er sjórinn gjöfull þegar vel gefur, sagði Sigurður, — Þess vegna fara menn út í eitthvað honum tenat og stofna fyrirtæki á því sviði. :FV 3 1978 77

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.