Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 82
Fyrirtseki, framleiðsla
Kalmar innréttingar hf., Skeifunni 8:
Staðlaðar einingar — leið til
aukinnar framleiðslu
Helgi og Edvard hjá Kalmar innréttingum við nokkur sýnishorn
af baðherbergisinnréttingum fyrirtækisins.
í Skeifunni 8 er nýtízkulegt
fyrirtæki sem selur innrétting-
ar frá sænska innréttingafram-
leiðandanum Kalmar Kök. Þar
eru á boðstólum glæsilegar inn-
réttingar í eldhús og baðher-
bergi og er sýningaraðstaða til
fyrirmyndar í húsakynnum fyr-
irtækisins. Þar eru uppsett eld-
hús af ýmsum gerðum auk bað-
herbergja þannig að ekkert fer
á milli mála hvernig innrétt-
ingarnar líta út uppkomnar.
Hjá Kalmar innréttingum hf.
er tekið tillit til yngstu kyn-
slóðarinnar: Innst í verzluninni
er leikaðstaða fyrir smábörnin
þar sem þau geta dundað sér
við leikföng á meðan foreldr-
arnir skoða innréttingar og
velta fyrir sér hvað þeim henti
bezt.
Allar innréttingar framleidd-
ar af Kalmar Kök eru byggðar
upp af stöðluðum einingum.
Enginn skyldi þó halda að sú
stöðlun hefði í för með sér fá-
breytni í gerð innréttinganna.
Staðreyndin er nefnilega sú að
fáir geta boðið upp á jafnmikla
fjölbreytni í útfærslu og gerð
og Kalmar innréttingar hf.
gera. Hér hefur stöðlun verið
nýtt til hins ítrasta einmitt með
það fyrir augum að geta boðið
fjölbreytt úrval innréttinga á
hagstæðu verði.
Notaðar eru ákveðnar grunn-
einingar til þess að byggja inn-
réttinguna upp eftir þörfum og
smekk hvers og eins, en síðan
er hægt að velja úr 30 mismun-
andi gerðum hurða og eru þær
í 13 verðflokkum.
Hurðarformin eru að miklu
leyti frábrugðin þeim sem tíðk-
ast við smíði hérlendis, segja
má að það sé hin „skandinav-
iska lína“ sem sé ráðandi, en
þar er viðurinn og viðaráferðin
það sem mest ber á. Að sögn
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins Edvards Sverrissonar virð-
ist fólk sækjast eftir þessari
hönnun og þeim möguleikum á
breytingum sem staðalsmíðin
gefur.
HURÐIRNAR GETA JAFNVEL
BEÐIÐ ÞAR TIL SÍÐAR
Edvard Sverrisson sýndi
blaðamönnum eldhúsinnrétt-
ingu sem að því er virtist var
gerð úr mjög fallegri furu og
skápar klæddir harðplasti að
innan. Efnið sem sýnist vera
fura er ný tegund plastefnis,
sem er svo lygilega líkt viði að
næstum ómögulegt er fyrir leik-
menn að greina þar nokkurn
mun á, enda má finna viðar-
æðarnar í efninu þegar nögl |r
rennt eftir yfirborðinu. Þet^a
efni er eitt af því sem Kalm^r
innréttingar bjóða viðskiptavip-
um sinum, það er níðsterHt,
auðvelt að þrífa og heldur sér
mjög vel. Einnig er hægt að
velja úr ekta viði af ýmsum
tegundum. Eitt af því sem er
sérstakt við Kalmar innrétting-
82
FV 3 1978