Frjáls verslun - 01.07.1978, Page 2
Nokkur atridi
umhugsunar
ffyrir þá sem auglýsa
á Noróurlandi
Akureyri 19. júlí 1978
Til þeirra sem ætla
aö auglýsa á Norðurlandi
Þegar auglýsandi ætlar að auglýsa
vöru sína, þá er það auðvitað hans
hagur að auglýsingin tari sem víöast,
með öðrum orðum, að upplag blaðs-
ins sem hann auglýsir í sé mikið og
komi tyrir margra augu.
Því miður er það svo á Islandi, að
upplagstölur blaðanna liggja ytirleitt
ekki á lausu, hvað þá upplýsingar um
útbreiðslu í einstökum landsfjórð-
ungum. Þetta gerir auglýsendum
óhægt um vik að gera sér grein fyrir
hvaða blað þjónar best markmiðum
þeirra. En auglýsendur vita sem er,
að landinu er skipt niður í afmörk-
uð markaðssvæði. Þannig er mjög
heppilegt fyrir þann sem ætlar að
auglýsa vöru eða þjónustu í einstök-
um landsfjórðungi að nota það blað
sem hefur mesta útbreiðslu á við-
komandi svæði.
Norðurland er annað stærsta
markaðssvæði landsins, með Akur-
eyri sem miðdepil. Vaxandi iðnaður
og traust atvinnulíf gerir það að verk-
um, að á Norðurlandi er góður og
stöðugur markaður. Þess vegna sjá
auglýsendur sér hag af því að auglýsa
í norðlensku blaði.
Dagur hefur ætíð haldið því fram að
hann væri útbreiddastur allra blaða á
Norðurlandi og til þess að geta stutt
þá fullyrðingu rökum könnuðum við
máliö, hringdum til allra blaðanna
sem Dagur á í samkeppni við og báð-
um þau að gefa okkur upp útbreiðslu
á Norðurlandi. Aðeins Þjóðviljinn
treysti sér ekki til að gefa okkur upp
tölur.
Af þessu má vera Ijóst að viljir þú
auglýsa á Norðurlandi og ná umtals-
verðum árangri þá er ekki nema eitt
blað sem kemur til greina, og það er
Dagur.
Þetta er umhugsunarefni fyrir þá
sem þurfa að auglýsa á Norðurlandi.
Niðurstaðan varð þessi:
Upplag
Tíminn ................. 4000
Morgunblaðið ........... 2900
Vísir .................. 2500
Dagblaðið .............. 2500
Norðurland ..............1700
Islendingur .............3000
Dagur .................. 5500
Með bestu kveöju,
Jóhann Karl Sigurðsson,
auglýsingastjóri.
DAGUR
Símar: 24166 23207 24167
Pósthólf 58 602 Akureyri