Frjáls verslun - 01.07.1978, Blaðsíða 75
þó að koma til aðgerðir af hálfu
hins opinbera.
Við höfum reyndar skotið fleiri
fótum undir reksturinn, til að nýta
mannafla og tæki, þegar lítið er að
gera. Til dæmis höfum við farið inn
á smíði skelfiskvinnsluvéla og höf-
um selt þó nokkrar og fleiri eru í
smíðum. Það eykur hagkvæmnina
aö geta nýtt mannskap og tæki á
þennan hátt og vonandi er að
framhald geti orðið á þessari
framleiðslu.
Hér í stöðinni starfa nú milli 40
og 60 manns. Okkur hefur gengið
nokkuð erfiölega að fá vinnuafl
upp á síðkastið. Tekjur manna í
skelfiskinum eru orðnar svo miklar
að vonlaust er að keppa þar við,"
sagði Ólafur aö lokum.
Sveitarfélagið
tekur þátt í
skelfiskvinnslu
„Hér í Búðardal búa um 300
manns, en í öllum hreppnum eru
líklega búsettir um 470 manns,
sagði oddvitinn í Búðardal, Har-
aldur Árnason, í viðtali við blaða-
mann Frjálsrar Verzlunar. Kaup-
túnið hér hefur fyrst og fremst
byggzt upp á þjónustu við ná-
grannasveitirnar og er því hrein-
ræktað sveitakauptún. Vart er
grundvöllur fyrir sjávarútvegi hér,
þar sem siglingaleið til kauptúns-
ins er ófær nær því öllum skipum
nema sérstaklega standi á sjávar-
föllum."
,,Við höfum þó aðeins verið aö
reyna fyrir okkur með skelfisk-
vinnslu og höfum í hyggju að halda
því áfram. Atvinnuuppbygging hér
hefur verið hæg og sígandi. At-
vinna hefur alltaf verið næg, utan
það að skort hefur atvinnutæki-
færi fyrir kvenfólk og unglinga.
Skelfiskvinnslan kæmi til með að
breyta allmiklu þar um. Þegar við
vorum með tilraunavinnsluna, sem
ég gat um áöan, veitti það 20— 30
konum vinnu.“
Hver er helzti kosturinn við
skelfiskvinnsluna umfram aðrar
greinar sjávarútvegs?
„Helzti kosturinn er sá, að
stofnkostnaður yrði lítill fyrir okk-
ur. Húsnæði til vinnslunnar er
þegar fyrir hendi, þar sem er slát-
urhús kaupfélagsins. Frysti-
geymslur höfum við einnig í
tengslum við sláturhúsið. Véla-
kostur til vinnslunnar er lítill. Við
þyrftum einungis að festa kaup á
einni vél, svonefndum hristara,
sem skilur fiskinn frá skelinni."
En hvernig verður hráefnisöflun
háttað, þar sem þið eigið engan
bát tíl að gera út á miðin?
,,Við eigum okkar framleiðslu-
númer og leyfi til skelfiskveiða í
Breiðafirði. Við hyggjumst gera
samning viö bátseiganda annars
staðar um að veiða upp í og nýta
þennan kvóta okkar, og síðan
yrði aflanum landað í Stykkishólmi
og ekið hingað inneftir. Nú, það
veldur okkur nokkrum aukakostn-
aði, en það er álit þeirra manna,
sem um þetta mál hafa fjallað, að
þessi vinnsla eigi samt sem áöur
aö geta borið sig."
Tekur sveitarfélagið á einhvern
annan hátt beinan þátt í atvinnu-
lífinu hér í Búðardal?
„Nei, svo er ekki. Við teljum rétt
Snœfellingar!
Allar algcngar
innlcndar og erlcndar
vörur.
SPORTVÖRUR
alls konar.
GJAFAVÖRUR,
mikið úrval.
BÚSÁHÖLD.
LEIKFÖNG.
SKÓFATNAÐUR.
NÆRFATNAÐUR.
SJÓKLÆÐNAÐUR.
SKJÓLFATNAÐUR.
Allar nauðsynlegar
vörur fyrir ferða-
fólk.
Gjörið svo vel að
líta inn og
skoðið.
HAFNAR-
BÚÐIN
RIFI
Hellissandi.
Sími
93-6655 -
6645 (heima).
75