Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1978, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.07.1978, Blaðsíða 20
stað á skrifstofunni er einungis að bjóða hættunni heim. Vel upplýst húsakynni mikil vörn Vel upplýst húsakynni eru mikil vörn gegn innbrotsþjófum. Þjófar hljóta að leggja síður til atlögu við þær verzlanir og fyrirtæki sem eru upplýstar á kvöldin og um nætur, þar sem þeir geta ekki framið verk sín í skugga næturinnar, heldur eiga á hættu að vera staðnir að verki. Kostnaöur af því að lýsa upp húsakynni um nætur hlýtur að borga sig. Nauðsynlegt er að forráðamenn verzlana og fyrirtækja geri sem nákvæmasta skrá yfir helztu verð- mæta hluti. Þetta er mjög þýöing- armikið ef hlutir tapast. Hvort tveggja er, aö eigandinn á auð- veldar með að sanna eignarrétt sinn, ef tekst að hafa upp á hlut- unum, og það auðveldar lögreglu rannsókn málsins. Góðar Ijós- myndir af slíkum verðmætum hlut- um geta veitt ómetanlega hjálp. Útstillingar stundum ógætilegar Ýmsum glæsilegum og oft verð- mætum hlutum er gjarnan stillt út í glugga verzlana, oft ógætilega. Sá hópur vill gleymast, sem stundar þá iöju að grípa hlutina ófrjálsri hendi. Skartgripa- og minjagripa- verzlanir stilla gjarnan dýrmætum munum út í glugga, enda hafa þessar verzlanir á boðstólum litla en dýrmæta muni. Sums staðar er því opin leið fyrir þjófa að grípa þessa hluti ófrjálsri hendi, eða brjóta þunna gluggarúðu og hrifsa fenginn til sín. Mörg fyrirtæki og verzlanir hafa komið sér upp viðvörunarkerfi til varnar innbrotum. Framfarir á því sviði hafa verið miklar, eins og önnur tækniþróun. Til þarf góða umhirðu og eftirlit, svo slíkt fyrir- komulag komi að góðum notum. Oft er það svo að mesta tjónið af völdum innbrotsþjófa eru skemmdarverk ýmis konar. Aðal- lega eru það skemmdir á dyra- og gluggabúnaði, þegar verið er að komast inn í húsakynnin og síðan skemmdir á húsmunum og læstum hirzlum inni, við leit að fjármunum eða verðmætum. Tjón, sem menn verða fyrir af þessum sökum skiptir oft miklum upphæðum. Stór hópur síbrotafólks Viðurlög við innbrotum og þjófnaöi eru samkvæmt 244. grein almennu hegningarlaganna, en þar segir: „Þjófnaður á fjármun- um eða orkuforða varðar fangelsi allt aö sex árum." Það hefur sýnt sig, og er talsvert vandamál, að stór hópur afbrotafólksins er sí- brotafólk, sem brýtur af sér aftur og aftur gagnvart landslögum. Refsing þyngist eftir því sem um fleiri brot er að ræða, og svo virðist sem afbrotafólk, a. m. k. þeir sem brjótast inn sé helzt á aldrinum 17—22 ára. Oftast á þetta unga fólk við erfiðleika að búa, bæði erfiðar heimilisaðstæður og sál- ræna erfiðleika. Fyrirtæki geta keypt innbrots- tryggingu Eigendur verzlana og fyrirtækja geta tryggt sig hjá tryggingarfé- lögum á landinu gegn innbrotum. Iðgjald slíkrar tryggingar fer eftir ástandi þess húsnæðis sem tryggja á. Friðrik Halldórsson hjá Sjóvá gaf upplýsingar um það, að ef verzlun eða fyrirtæki ákveður að tryggja sig gagnvart innbrotum sendir tryggingarfélagið skoðun- armann á staöinn sem metur hús- næöið, þ. e. hvernig læsingar á huröum og gluggum eru úr garði gerðar, eða aörir þeir staðir, sem innbrotsþjófar gætu komist inn. Það fer svo eftir ásigkomulagi húsnæðisins hvort tryggingarfé- lagiö tekur að sér að innbrota- tryggja fyrirtækið eöa verzlunina og hve iðgjaldið er hátt. Vátryggingarskilyrði eru m. a. þau, a. m. k. hjá Sjóvá, að inn- 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.