Frjáls verslun - 01.07.1978, Blaðsíða 45
helzta úr sögu fyrirtækisins af
stuttri kynningarkvikmynd, sem
sýnd var í móttökusal inn af and-
dyri. Þar var greint frá því, að áriö
1864 heföi Gerard Heineken keypt
brugghús í Amsterdam, sem starf-
að hafði síóan 1592, og ætlaöi
hann sér að brugga bjór í sérstök-
um gæðaflokki og gera tilraunir
með ýmsar nýjungar. Það leið ekki
á löngu áður en önnur verksmiðja
var sett á stofn í Rotterdam, en nú
eru það fjórar verksmiðjur í Hol-
landi, sem brugga Heinekenbjór.
Samtals geta þær framleitt 10
milljón hektólítra á ári og farið upp
í 19 milljónir með stækkun verk-
smiðjunnar í Zoeterwoude.
Gömul bjórhefð
Því er haldið fram af sagnfræð-
ingum, aö vöxtur Amsterdam á
sínum tíma hafi fyrst og fremst
orðið vegna sölu á þýzkum bjór til
Flandern í Belgíu, meö viðkomu í
Hollandi. Þá voru menn þegar
farnir að gera miklar kröfur til
gæða bjórsins og var bjór gjarnan
innfluttur frá öðrum löndum til að
mæta kröfum neytenda um gott
bragð. Á miðöldum höfðu kerling-
ar fengizt við að brugga heima við,
en svo tóku bruggarar til starfa í
brugghúsum.
í Zoeterwoude er hægt að sjá
gjörla hvernig unnið er að bjór-
gerðinni. Þar eru stórar korn-
geymslur fyrir hráefni sem síöan er
blandað vatni og látið þreskjast.
Kornið er svo hitað og malað,
blandað geri og látið gerjast,
kryddað og kælt og látið þroskast
þangað til mjöðurinn er sigtaður
og látinn á flöskur. Geysileg sjálf-
virkni er í vinnusalnum, þar sem
áfylling á flöskur fer fram, en þar er
mögulegt að tappa á 75 þúsund 30
cl flöskur á klukkustund.
Mjög strangar reglur um meng-
unarvarnir gilda í Hollandi og við
bjórverksmiðjuna í Zoeterwoude
sáum við dæmi um framkvæmd
þeirra. Öllu frárennsli frá bjór-
gerðinni er safnað saman í þrær
úti á verksmiðjulóðinni og þar
blandast meira að segja saman við
það skolp frá öllum húsum fyrir-
tækisins. Þarna er þetta hreinsað
að því marki aö föst efni eru skilin
frá vatninu, sem síðan fær að
renna áfram út í skurði og síki.
Föstu efnin eru síðan notuð í
áburð, sem borinn er á grasflat-
irnar, sem eru víðáttumiklar þarna
við verksmiðjur Heineken í Zoet-
erwoude.
(i fit jf 1
/<7Vj ./ \\ J