Frjáls verslun - 01.07.1978, Blaðsíða 20
stað á skrifstofunni er einungis að
bjóða hættunni heim.
Vel upplýst húsakynni mikil vörn
Vel upplýst húsakynni eru mikil
vörn gegn innbrotsþjófum. Þjófar
hljóta að leggja síður til atlögu við
þær verzlanir og fyrirtæki sem eru
upplýstar á kvöldin og um nætur,
þar sem þeir geta ekki framið verk
sín í skugga næturinnar, heldur
eiga á hættu að vera staðnir að
verki. Kostnaöur af því að lýsa upp
húsakynni um nætur hlýtur að
borga sig.
Nauðsynlegt er að forráðamenn
verzlana og fyrirtækja geri sem
nákvæmasta skrá yfir helztu verð-
mæta hluti. Þetta er mjög þýöing-
armikið ef hlutir tapast. Hvort
tveggja er, aö eigandinn á auð-
veldar með að sanna eignarrétt
sinn, ef tekst að hafa upp á hlut-
unum, og það auðveldar lögreglu
rannsókn málsins. Góðar Ijós-
myndir af slíkum verðmætum hlut-
um geta veitt ómetanlega hjálp.
Útstillingar stundum ógætilegar
Ýmsum glæsilegum og oft verð-
mætum hlutum er gjarnan stillt út í
glugga verzlana, oft ógætilega. Sá
hópur vill gleymast, sem stundar
þá iöju að grípa hlutina ófrjálsri
hendi. Skartgripa- og minjagripa-
verzlanir stilla gjarnan dýrmætum
munum út í glugga, enda hafa
þessar verzlanir á boðstólum litla
en dýrmæta muni. Sums staðar er
því opin leið fyrir þjófa að grípa
þessa hluti ófrjálsri hendi, eða
brjóta þunna gluggarúðu og hrifsa
fenginn til sín.
Mörg fyrirtæki og verzlanir hafa
komið sér upp viðvörunarkerfi til
varnar innbrotum. Framfarir á því
sviði hafa verið miklar, eins og
önnur tækniþróun. Til þarf góða
umhirðu og eftirlit, svo slíkt fyrir-
komulag komi að góðum notum.
Oft er það svo að mesta tjónið af
völdum innbrotsþjófa eru
skemmdarverk ýmis konar. Aðal-
lega eru það skemmdir á dyra- og
gluggabúnaði, þegar verið er að
komast inn í húsakynnin og síðan
skemmdir á húsmunum og læstum
hirzlum inni, við leit að fjármunum
eða verðmætum. Tjón, sem menn
verða fyrir af þessum sökum
skiptir oft miklum upphæðum.
Stór hópur síbrotafólks
Viðurlög við innbrotum og
þjófnaöi eru samkvæmt 244. grein
almennu hegningarlaganna, en
þar segir: „Þjófnaður á fjármun-
um eða orkuforða varðar fangelsi
allt aö sex árum." Það hefur sýnt
sig, og er talsvert vandamál, að
stór hópur afbrotafólksins er sí-
brotafólk, sem brýtur af sér aftur
og aftur gagnvart landslögum.
Refsing þyngist eftir því sem um
fleiri brot er að ræða, og svo virðist
sem afbrotafólk, a. m. k. þeir sem
brjótast inn sé helzt á aldrinum
17—22 ára. Oftast á þetta unga
fólk við erfiðleika að búa, bæði
erfiðar heimilisaðstæður og sál-
ræna erfiðleika.
Fyrirtæki geta keypt innbrots-
tryggingu
Eigendur verzlana og fyrirtækja
geta tryggt sig hjá tryggingarfé-
lögum á landinu gegn innbrotum.
Iðgjald slíkrar tryggingar fer eftir
ástandi þess húsnæðis sem
tryggja á. Friðrik Halldórsson hjá
Sjóvá gaf upplýsingar um það, að
ef verzlun eða fyrirtæki ákveður að
tryggja sig gagnvart innbrotum
sendir tryggingarfélagið skoðun-
armann á staöinn sem metur hús-
næöið, þ. e. hvernig læsingar á
huröum og gluggum eru úr garði
gerðar, eða aörir þeir staðir, sem
innbrotsþjófar gætu komist inn.
Það fer svo eftir ásigkomulagi
húsnæðisins hvort tryggingarfé-
lagiö tekur að sér að innbrota-
tryggja fyrirtækið eöa verzlunina
og hve iðgjaldið er hátt.
Vátryggingarskilyrði eru m. a.
þau, a. m. k. hjá Sjóvá, að inn-
20