Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1978, Side 15

Frjáls verslun - 01.07.1978, Side 15
ordspor Fyrir nokkru var ráðinn sérstakur fjár- málastjóri til starfa hjá Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli og var ástæðan sú, að rýrnun hjá fyrirtœkinu þótti óeðlilega mikil. Ríkisendurskoðunin hefur haft mál þetta til meðferðar og gert tillögur um framtíðarskipan reksturs Frihafnarinnar. Það mun hafa komið fram við athugun ríkisendurskoðunar, að rýrnunin er mest í ýmsum öðrum varningi en áfengi og tóbaki og því er lagt til að sala á úrum, myndavé/um, útvarpstœkjum og öðru slíku verði hætt, en einvörðungu áfengi og tóbak haft á boðstó/um. Ríkisendurskoð- unin mun ganga svo langt í tillögum sín- um að mæla með því, að ríkið hætti rekstri Fríhafnarinnar og hann verði boðinn út. • Eftir að Svavar Gestsson settist á stól viðskiptaráðherra og liætti að halda um pennann sem ritstjóri Þjóðviljans, hefur skapazt nokkurt óvissuástand um skipan ritstjórnar þess blaðs. Einar Karl Har- aldsson, fréttastjóri, hefur talið sig geta gert nokkurt tilkall til ritstjórastöðunnar, en hann virðist eiga skœðan keppinaul þar sem er Hjalti Kristgeirsson. Hefur Hjalti starfað sem blaðamaður við Þjóð- viljann og skrifað ritstjórnargreinar. Hjalti nýtur þess í stöðunni að vera föð- urbróðir Ólafs Ragnars Grímssonar, eins áhrifamesta leiðtoga A Iþýðubandalagsins um þessar mundir. Hver sem útkoman í ritstjóramálum verður, er Ijóst, að Þjóð- viljinn verður að miklu leyti skrifaður sem stjórnarandstöðublað á næstu mánuðum. Ritstjórn blaðsins hefur ákveðið að eftir- láta ekki Morgunblaðinu að halda uppi gagnrýni á rikisstjórnina og segja frá málum, sem eiga að fara leynt innan hennar. A Iþýðubandalagsmenn œtla hvort eð er að koma stjórninni fyrir katt- arnef þegar þeir telja timábœrt að efna til nýrra kosninga og afgreiða Alþýðuflokk- inn endanlega vegna kosningasigurs hans í sumar. q Hótel Húsavík er eitt veglegasta og bezt rekna gisti- og veitingahúsið utan Reykjavíkur. Arangur sinn af hótel- rekstrinum mega Húsvíkingar eflaust að miklu leyti þakka því, að reyndur og duglegur hótelstjóri hefur verið þar við stjórn, Einar Olgeirsson, sem um átrabil starfaði á Hótel Sögu í Reykjavík. Einar hefur nú sagt starfi sínu á Húsavík lausu og verður væntanlega ráðinn til að veita forstöðu rekstri Sjálfstæðishússins á Ak- ureyri. Er ætlunin að breyta þeim stað frá því sem verið hefur síðustu árin og gera Sjálfstœðishúsið að fyrsta flokks mat- sölustað fyrir Akureyringa og aðra gesli á öllum aldri, en undanfarið hefur mest farið fyrir dansskemmtunum unga fólks- ins í Sjallanum. Cargolux, dótturfyrirtœki Flugleiða í Luxemborg, fœr til afnota í janúar vöru- flutningaþotu af gerðinni Boeing 747. Verður hún notuð í reglubundnum ferðum fé/agsins til fjarlœgari Austurlanda. / farþegaflugvélum af þessari gerð er rými á tveim hœðum og í Cargoluxvélinni er ætlunin að hafa sœti fyrir farþega á efri hæðinni. Mun félagið þannig geta gefið viðskiptavinum sínum kost á að ferðast með í boði félagsins á fjarlæga ákvörðun- arstaði, en aðstaða til að taka farþega með í núverandi flugvélakosti félagsins er í algjöru lágmarki. Búast má við aukinni fréttaþjónustu í útvarpsdagskránni í vetur. Umræður munu hafa staðið um að verja tímanum frá 8 til 9 á morgni hverjum í fréttir og ýmsa þætti um málefni líðandi stundar, sem starfsmenn fréttastofu útvarpsins hefðu umsjón með. 15

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.