Frjáls verslun - 01.07.1978, Side 60
byggd
Landsbankaútibú i Olafsvík
bætli úr brvnni börf
I Ólafsvík eru tvær peninga-
stofnanir, Sparisjóður Ólafsvíkur,
sem þar hefur starfað um 86 ára
skeið, og svo útibú Landsbanka
fslands, sem komið var á fót þar
fyrir um tveimur árum.
Sólon Sigurðsson er nýráðinn
útibústjóri í Ólafsvík og við sner-
um okkur til hans og inntum hann
eftir hvernig starfinu þar fyrir
vestan væri háttað og á hvern hátt
það væri frábrugðið til dæmis
starfsemi bankaútibúanna í
Reykjavík.
,,í raun er þetta útibú hér í tvennu
lagi. Annars vegar hér í Ólafsvík,
þar sem starfa um 8 manns og hins
vegar úti á Hellissandi, þar sem við
erum með 3 starfsmenn. Við búum
við allgott húsnæði, sérstaklega sá
hluti starfseminnar sem er hér í
Sólon Sigurðsson, útibússtjóri Lands
bankans í Ólafsvík.
Ólafsvík. Hvað starfiö sjálft varðar
þá einkennist það nokkuð af því að
Ólafsvík er fyrst og síöast sjávar-
þorp. Öll meiri háttar peningavið-
skipti hér snúast um sjávarútveg-
Jnn og alla þá sjóði og lán sem
honum fylgja. Áður en þetta útibú
var sett hér upp urðu Ólafsvíkingar
að sækja alla þessa þjónustu beint
til Reykjavíkur, og geta menn getið
sér til um hvert óhagræöi hefur
verið af því. Ef við höldum saman-
buröinum áfram þá höfum vió lítið
að segja af þeim innflutningsvið-
skiptum, sem eru nokkuð stór
þáttur í bankastarfsemi þar. Nú,
annað er ekki ósvipað."
Við spurðum Sólon hvernig það
væri að þurfa að halda sig fyrir
neðan útlánaþakið svonefnda.
„Jú, við reynum að halda þessu
öllu í réttum skorðum. Ástandið nú
60