Frjáls verslun - 01.07.1978, Blaðsíða 74
Vilja tækifæri til að
smíða skip á lager
Rætt við Ólaf Krist-
jánsson, fram-
kvæmdastjóra Skipa-
víkur í Stykkishólmi
í Stykkishólmi er iðnaður lang
mest stundaöur á öllu Snæfells-
nesi. Margir þakka þetta iönskól-
anum sem þar er, og vafalaust
hefur hann haft mikil áhrif í þá átt
að auka fjölbreytni atvinnulífsins á
staðnum.
Stærsta fyrirtækið í Hólminum er
Skipasmíðastöðin Skipavík hf.,
sem varð til við það er Vélsmiðjan
gekk inn í rekstur fyrirtækis, sem
stofnaö hafði verið til af nokkrum
smærri skipasmíöastöðvum. 3 ár
eru nú liðin frá því að þetta gerðist
og hefur fyrirtækið stööugt verið
að byggjast upp. Að sögn Ólafs
Kristjánssonar framkvæmdastjóra
fyrirtækisins er hlutafé fyrirtækis-
ins nú um 40 milljónir.
,,Við erum hér með viðgerðar-
þjónustu fyrir bæði tréskip og
stálskip, auk þess sem við erum í
nýsmíði. Sem stendur erum viö að
byggja hér 75 tonna stálbát og lík-
ast til höfum við næg verkefni fram
að áramótum, en þá þykir mér
heldur syrta í álinn. Mjög hefur
verið dauft yfir nýsmíðinni undan-
farið og við höfum engan samning
upp á aö hlaupa eftir að smíöi
þessa skips lýkur og ég sé ekki
fram á að neitt sé í vændum. Fyrir-
tækiö hefur náð allgóðri fótfestu
og hefur skilað arði síðustu tvö ár-
in, en nú er ástand hér á landi
þannig að lítil hreyfing er í smíði
báta af þeirri stærð sem við teljum
okkur helzt ráða við, það er að
segja 50—100 lesta fleytur. Við
getum auðvitað smíðað stærri
skip, eða allt að 250 lestir, en hag-
kvæmast er eins og sakir standa
að halda sig við minni tegundina.
Við teljum að grunnmið séu nú
að taka við sér aftur og fyllast af
fiski og brátt muni því verða þörf
fyrir lítil skip af þeirri stærð sem ég
nefndi áðan. Það er því spurning
hvort viö ættum ekki aö fara að
framleiða báta af þessari stærð á
lager. Til þess að svo verði þurfa
Er þú kemur í Búðardal
líttu þá inn á Hótel
Bjarg:
Þar færðu ætíð bestu
fyrirgreiðslu í mat og
drykk.
Við höfum 28 ára
reynslu að baki.
Dalirnir bjóða upp á náttúrufegurð, marga sögustaði og
fallegt landslag.
Um leið og við þökkum þeim mörgu viðskiptavinum okkar,
bjóðum við ykkur velkomin.
74