Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 8
I
STIKLAÐ A STORU...
30 ára Bandaríkjaflug
Liðin eru 30 ár síðan Loftleiðir
fóru sitt fyrsta farþegaflug til
Bandaríkjanna. Þessi ferð átti eftir
að verða upphaf merks áfanga í
sögu íslenskra flugmála. Flug Loft-
leiða yfir Atlantshaf hefur um árabil
verið snar þáttur í rekstri félagsins
og síðar Flugleiða og með sanni má
segja að farþegaflutningar milli
New York og Luxemborgar með
viðkomu á Islandi hafi um langa
hríð verið merk grein i íslenskri at-
vinnulífs- og efnahagssögu.
Frá því í ágúst 1948 þar til árið
1952 flugu Loftleiðir óreglulega
milli íslands og New York, en 1952
hófust vikulegar ferðir milli Islands
og Bandaríkjanna og áfram til
Evrópu. Lág fargjöld yfir Atlantshaf,
sem tilkynnt voru í ársbyrjun 1953,
vöktu mikla athygli, öfluðu félaginu
mikilla viðskipta og með þeim náði
félagið til viðskiptavina sem að
öðrum kosti hefðu notað skipa-
ferðir eöa ekki ferðast. I maí 1955
hófu Loftleiðir reglulegar ferðir New
York/Reykjavík/Luxemborg, og óx
sú flugleið með miklum hraða að
ferðatíðni og farþegafjölda. Fram
yfir 1960 voru Skymaster flugvélar í
þessu flugi, en eftir að Loftleiðir
fengu sína fyrstu Cloudmaster
flugvél 1959, voru Skymaster flug-
vélar teknar úr notkun á leiðinni.
Síðar tóku við skrúfuþotur af gerð-
inni Rolls Royce 400 og nú flýgur
félagið þessa leið með DC-8-63
þotum sem rúma 249 farþega hver,
en af þeim eiga Flugleiðir nú þrjár
flugvélar og hafa auk þess tvær
samskonar flugvélar á leigu. Þegar
litið er til baka yfir 30 ára þróunar-
sögu flugs yfir Atlantshaf má því
með sanni segja að brotið hafi verið
blað i sögu íslenskra flugmála með
fyrsta flugi Loftleiða til New York.
„Ráð og réttir"
Búvörudeild Sambandsins hefur
um langt skeið haldið uppi margs
konar leiðbeiningar- og vörukynn-
ingarstarfsemi í sambandi við
framleiðsluvörur sínar. Nú fyrir
skömmu var hafin útgáfa á röð lítilla
leiðbeiningabæklinga, sem gefnir
verða út undir nafninu ,,Ráð og
réttir". Það eru Kjötiðnaðarstöð og
Afurðasala, sem standa sameigin-
lega að þessari útgáfu, og vferður í
þessum bæklingum kynnt meðferð
á kjöti, unnum kjötvörum og inn-
mat. Gerð hefur verið sérstök laus-
blaðamappa til að safna þessum
bæklingum í, og verður hún seld í
þeim verzlunum, sem selja Goða-
vörur. Bæklingunum verður síðan
dreift ókeypis til neytenda á sömu
stöðum.
Pylsupotturmeð kryddi
500 g GOÐA-pylsa, t.d. Reykt Medister eða Dalapylsa
1 stór laukur
2 tsk karrý
1 tsk kúmen
2 msk hveiti
4 dl vatn
2 súputeningar
1 epli
1/2 sellerírót
1. Skerið pylsuna í bita og laukinn í sneiðar.
2. Kraumið laukinn í örlítilli feiti, bætið pylsubitunum
í og brúnið aðeins.
3. Stráið karrýinu í pottinn og látið það sjóða upp.
Bætið kúmeninu í.
4. Hrærið saman hveiti og vatn og hellið því í pottinn,
hrærið vel í á meðan.
5. Rífið eplið og sellerírótina út í pottinn og látið
sjóða í nokkrar mínútur. Bragðbætið með salti, pipar og
súputeningum ef þörf krefur. Berið kartöflur, hrís-
grjón og/eða grænmeti mcð.
Verslunarskólar og vlðskipta-
menntun á framhaldsskólastigi
Skólar þeir sem veita viðskipta-
menntun á framhaldsskólastigi eru:
Verslunarskóli íslands, Samvinnu-
skólinn, fjölbrautaskólar og fram-
haldsdeildir við ýmsa grunnskóla.
Verslunarskóli (slands og Sam-
vinnuskólinn voru og eru að nokkru
leyti enn einkaskólar, en frá 1976
starfa þeir í samræmi við lög nr.
51/1976 og eru að mestu kostaðir
af ríkissjóði.
Báðir skólarnir hafa nú fram-
haldsdeildir, sem útskrifa stúdenta.
Unnið er að því að ganga frá
námsskrá fyrir viðskiptamenntun á
framhaldsskólastigi og er gert ráð
fyrir að námstími verði þrjú ár.
Við Verslunarskóla Islands sem
er fjögra ára skóli stunda nú nám
673 nemendur samkvæmt skýrslu
menntamálaráðuneytisins, þar af
eru 461 nemandi í verslunardeild,
en fyrstu tvö námsárin teljast til
þeirrar deildar. Þeir sem Ijúka prófi
með sæmilegum árangri frá versl-
unardeildum geta síðan haldið
námi áfram og lokið stúdentsprófi,
að öllu jöfnu, eftir tveggja ára viö-
bótarnám, í þeirri deild eru nú 212
nemendur.
Samvinnuskólinn að Bifröst er
tveggja ára skóli.
Framhaldsdeild skólans er í
leiguhúsnæði í Reykjavík og út-
skrifar sú deild stúdenta.
I viðskiptanámi í fjölbrautaskól-
um og framhaldsdeildum eru nú við
nám um 750 nemendur.
Orkusöluaukning 2.8% hjá RR.
Orkukaup og orkuvinnsla Raf-
magnsveitu Reykjavíkur árið 1977
námu samtals 368,964 GWh, og var
aukning frá fyrra ári 2,5%, en 4,8%
árið áður. Orkukaup frá Lands-
virkjun námu 367,583 GWh, voru
201,395 GWh keyptar við 132 kV
spennu (54,8% af heildarkaupum),
en 166,188 GWh viö lægri spennu.
Eigin orkuvinnsla í Elliðaárstöð
nam 1,381 GWh. Töp í dreifikerfi
reiknast 7%.
Raforkukaupin í heild námu kr.
1.232.634.254. Meðalverð keyptrar
orku á árinu var 3,35 kr/kWh.
Meðalverð keyptrar orku árið áður
var 2,57 kr/kWh, og hefur
hækkunin numið 30,0%.
Sala raforku samkvæmt sölu-
skýrslu nam 339,0 GWh á árinu, en
329,8 GWh árið áður, svo aö orku-
söluaukning samkvæmt því hefur
orðið 2,8% frá fyrra ári.
Gjaldskrá Rafmagnsveitunnar
hækkaði um 14% 01.01. 1977 og
um 21% 01.11. 1977. í bæði skiptin
voru hækkanirnar samfara breyt-
ingum á heildsöluverði raforku frá
Landsvirkjun. Meðalverð seldrar
orku 1977 var 12,32 kr/kWh (9,88
kr/kWh árið áður). Flefur hækkunin
numið 24,7% frá fyrra ári.
Árið 1977 nam heildarsala raf-
orku frá Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur 4143 Mkr að meðtöldum sölu-
skatti og verðjöfnunargjaldi. Enn-
fremur innheimti Rafmagnsveitan
1804 Mkr fyrir Hitaveitu Reykja-
víkur.
Nýtt erlent lán var tekið á árinu til
framlengingar á eldri erlendum
lánum. Var það tekið hjá Hambros
Bank í London, og nam fjárhæð
þess um 560 Mkr. Afborganir eldri
8