Frjáls verslun - 01.08.1978, Qupperneq 9
lána og gengismunur af þeim námu
samtals 560 Mkr.
Rekstrarjöfnuður ársins 1977 var
585 Mkr, og höföu þá verið af-
skrifaðartæplega 114 Mkr.
Útkoma ársins var reikningslega
betri en næsta árs á undan, en sé
miðað við verðbólgu á árinu 1977
og aukningu þeirra verðmæta, sem
í fyrirtækinu eru bundin, hefur af-
koma þess versnað frá fyrra ári.
Skipakomur og vöruflutningar í
Reykjavíkurhöfn
Árið 1977 komu 3.240 skip tii
Reykjavíkurhafnar, samtals að
stærö 3.143.142 brúttórúmlestir.
Að fjölda til var fækkun á skipa-
komum frá fyrra ári um 10,2% en að
stærð varð minnkunin aðeins 0,2%.
Fækkunin liggur einkum í að komur
fiskiskipa voru næstum 400 færri
árið 1977 en árið áöur. Af heildar-
skipakomunum eru 2.958 komur
íslenskra skipa, eða rúm 91%, en
að stærð gera íslensku skipin
63,4% af heildinni.
Alls voru komur erlendra skipa
282 af 24 þjóðernum. Flestar voru
komur rússneskra skipa eða 63
talsins. Vestur-þýsk skip komu 62
sinnum, norsk 51 sinni og dönsk 33
sinnum. Heildar vöru- og aflamagn
sem fór um höfnina á árinu nam
1.470.635 tonnum samtals og er
það 2,2% aukning frá fyrra ári. Al-
mennir vöruflutningar um höfnina
jukust aftur á móti um 8,7 af
hundraöi frá fyrra ári og námu nú
1.031.600 tonnum. 13% aukning
varð I flutningi frá höfninni og 8,1 %
aukning á flutningi til hafnarinnar.
Afli lagður á land nam 91.135
tonnum og jókst um 15,7% frá fyrra
ári. Af heildaraflanum nam loðna
55.375 tonnum. Um 15% minnkun
varð á dældum steinefnum sem
lögð voru á land á hafnarsvæðinu
og varð heildarmagnið 347.900
tonn.
Bifreiðar fluttar með Akraborg
um höfnina námu um 39.000 en
ekki liggja fyrir upplýsingar um það
vörumagn sem flutningabifreiðar
fluttu né heldur um fjölda þeirra.
Heildarfjöldi gáma sem fór um
höfnina varð 32.344 stk. Þetta er
allmikið færri einingar en árið áður.
Af innflutningi frá útlöndum, sem
fer um hafnarbakka í eigu hafnar-
sjóðs fer um 37% um Sundahöfn.
Kalda borðið
-kjörið í hádeginu
Kræsingar kalda borðsins í Blómasal cru löngu víðkunn-
ar. Óteljandi tegundir af kjöt og sjávarréttum auk íslenskra
þjóðarrétta. Tískusýningar í hádeginu á föstudögum.
Bjóðið viðskiptavinum og kunningjum í kræsingar kalda
borðsins.
Verið velkomin, Hótel Loftleiðir.
HÓTEL
LQFTLEIÐIR
9