Frjáls verslun - 01.08.1978, Síða 17
aðgang að upplýsingunum og
jafnframt er heimilt í samráði við
fyrirtækið að gefa út almennar
fréttatilkynningar um árangurinn
og sýna áhugasömum aðilum
vissa þætti niðurstaðnanna án
þess þó að birta þær í heild.
Engin frekari réttindi innifalin
Fulltrúum Western Geophysical
hefur verið gerð grein fyrir því að
þessi leyfisveiting feli hvorki í sér
framhaldsleyfi til sams konar
kannana né nokkur önnur réttindi í
sambandi við framhald málsins.
Þegar ríkisstjórnin tók ákvörðun í
maílok um að heimila iðnaðar-
ráðuneytinu að semja um þessa
könnun var skýrt tekið fram, að
eingöngu væri um frumkannanir
að ræða. Niðurstöður af þeim
verða athugaðar en að öðru leyti
er allt óákveðið um framhaldið.
Var fulltrúum Western
Geophysical gerð fullkomlega
Ijós sú áhætta sem fólgin væri í
borunum eða hugsanlegri vinnslu
út frá fiskverndarsjónarmiðum
þannig að þeim er Ijóst, að ekki er
um nein frekari fyrirheit að ræða.
Áhugi fyrirtækja á að gera
athugun sem þessa á eigin
kostnað ræðst af nokkrum
atriðum. í fyrsta lagi má nefna að
þau tímabil koma aö þau hafa ekki
verkefni fyrir skip sín og vilja þess
vegna nýta þau á ókönnuðum
svæðum. Um leið er aflað þekk-
ingar og reynslu, sem hugsanlega
gæti orðiö til þess að þau sætu
betur að verkefnum, þegar mál
þróast lengra þó ekki verði fyrr en
eftir mörg ár.
Ekki er nákvæmlega Ijóst, hve
mikill kostnaður er af rannsókn
sem þessari en Ijóst er að Western
Geophysical mun verja geysiháum
upphæðum til hennar, sem þannig
sparast íslenzka ríkinu.
Margvísleg vandamál
Enn sem komið er hefur vinnsla
olíu ekki farið fram á því dýpi, sem
um er að ræða á rannsóknar-
svæðinu hér við land en það er
víða um og yfir 1000 metrar. Þegar
svo noröarlega dregur getur líka
verið hætta á ísreki. En tækni á
þessu sviði fleygir mjög ört fram,
og ekki er hægt aö útiloka mögu-
leikaáað unntverði að vinnaolíu á
þetta miklu dýpi og við þær að-
stæður aðrar, sem á svæðinu ríkja.
Stefnt er að því að niðurstöður
af þessari rannsókn liggi fyrir inn-
an þriggja mánaðaog ísíðasta lagi
sex mánuðum eftir að mælingum
lýkur. Þá mun leyfishafi afhenda
iðnaðarráðuneytinu afrit af öllum
gögnum, sem könnunin leiðir af
sér og er skuldbundinn jafnframt
til að aðstoða ráðuneytið við túlk-
un á þeim, ef slíks er óskað.
Trúnaðarmaður ráðuneytisins
verður viðstaddur úrvinnslu gagn-
anna í London. Þá er leyfishafan-
um skylt að gera grein fyrir sölu á
upplýsingunum, svo aö fylgzt
veröur með því hverjir fá þær.
Kynntu sér reynslu Notðmanna
Af hálfu íslenzkra stjórnvalda
hefur að þessum málum starfað
vinnuhópur undir forystu Árna Þ.
Árnasonar, skrifstofustjóra í
iðnaðarráðuneytinu en Ólafur
Egilsson var fulltrúi utanríkisráðu-
neytisins í honum og hafði orö fyrir
hópnum í viðræðum við fulltrúa
Western Geophysical. Aðrir í
vinnuhópnum voru Benedikt
Sigurjónsson, hæstaréttardómari,
dr. Guðmundur Pálmason,
deildarstjóri hjá Orkustofnun og
Þóroddur Th. Sigurðsson, verk-
fræðingur. Áður höfðu þeir Árni Þ.
Arnason, Guðmundur Pálmason
og Árni Tryggvason, sendiherra í
Osló, sérstaklega kynnt sér
hvernig Norðmenn höfðu haldið á
slíkum málum og skiluðu þeir
I skýrslu þar um.
Kort þetta sýnlr 200 mllna landhelglna vlð fsland. Norður og norð-
vestur af landlnu eru sýndar ( stórum dráttum fyrlrhugaðar slglinga-
lelðlr Karen Bravo.
17