Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 23
Ferðamálasjóður lánaði
87 milljónir í fyrra
Ferðamálasjóður veitti í
fyrra sjö aðilum 10 lán,
samtals að upphæð kr. 87
milljónir. Umsóknir, sem
bárust voru alls 14, að upp-
hæð tæpar 300 millj. króna.
Þá var og leitað eftir tána-
fyrirgreiðslu til 14 annarra
framkvæmda, sem voru
aðeins á hönnunarstigi.
Næstu tvö árin á undan, 1975 og
1976, bárustsjóðnum 19 umsóknir
um lán, að upphæð kr. 229 millj.
Ferðamálasjóður veitti fimm
aðilum sex lán úr sjóðnum að
upphæð rúmar 33 milljónir.
Lánveitingar í fyrra voru til eftir-
talinna aðila:
Hótel KEA, 2 lán, 15 millj. og 7
millj., til breytingar og stækkunar.
Hótel Ólafsfjörður, 10 millj., nýtt
hótel.
Hótel Höfn, Siglufirði, 5 millj. til
breytingar og endurbótar.
Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum,
12 millj., viðbygging við félags-
heimili til gistihússrekstrar.
Hótel Borgarnes, 2 lán, 10 millj.
og 3 millj., til viðbyggingar.
Hótel Ólafsvík, (Sjóbúðir h.f.) 3
millj.
Hótel Saga, 2 lán, 15 millj. og 7
millj.
Á síðastliönum þremur árum
hafa tvö lán verið veitt til Reykja-
víkur en 14 til annarra staða.
í fyrra rættist töluvert úr fjár-
hagsvanda Ferðamálasjóðs en
hann var mjög mikill árin tvö á
undan. Lánakjör hafa nú verið
bætt og verðtrygging lækkuö.
Lánakjör sjóðsins hafa frá upphafi
verið verðtryggð að fullu, sem
hefur leitt til allmikilla vanskila.
Eldri lög um Ferðamálasjóð kváðu
á um að endurlán úr sjóðnum
skyldu vera að fullu verðbundin.
Með nýjum lögum, sem öðluðust
gildi á miðju ári 1976 var ákvæöi
þetta rýmkað nokkuð. Þetta leiddi
til þess aó sjóðnum tókst á árinu
1977 að ákveða verulega rýmri
lánakjör. Tókst að lækka verð-
tryggingarhlutfall útlána niður í
50% og ákvarða vaxtafót til sam-
ræmis við það.
í eftirfarandi töflu sést annars
vegar vaxtafótur og verðtrygg-
ingarhlutfall sjóðsins á árunum
1975, 1976 og 1977 og hins vegar
lánstimi fyrir sömu ár.
Miklar umræður hafa oröiö á
fundum stjórnarnefndar Ferða-
málasjóðs undanfarin ár um fjár-
mögnun og uppbyggingu sjóösins
en taflan hér aö ofan sýnir samsetn-
ingu fjármagns í milljónum króna í
útlánum sjóðsins frá 1970.
Sjóðnum tókst ekki að afla sér
lánsfjármagns á árinu 1975 og
1976, sem leiddi til að útlán voru
verulega lægri en annars hefði
orðið. Framlag ríkissjóðs hefur
vaxið nokkuð hin síðari ár og var
kr. 25 milljónir á árinu 1977. Mjög
hertar innheimtuaðgerðir skiluðu
nokkrum árangri á árinu 1977, þó
ekki hafi sá árangur orðið slíkur
sem vænzt var, en eigin fjármögn-
un sjóðsins í útlánum umfram
framlag ríkissjóðs á því ári var 9
millj. króna.
Á ferðamálaráðstefnu, sem
haldin var í vor var gerö ályktun,
þar sem minnt er á, að fram til árs-
ins 1977 hafi lán Ferðamálasjóðs
verið með slíkum afarkjörum, að
engum atvinnuvegi í landinu hafi
um árabil verið boðið upp á annað
eins. Lán hafi verið um árabil með
91/2: vöxtum og bæði vextir og af-
borganir aö fullu tryggt með vísi-
tölu framfærslukostnaðar. Telur
ráöstefnan, aö hægt sé að sýna
fram á, að meðalþungi afborgana
og vaxta á 15 ára lánstímabili fari
yfir 80% á ári. Ráðstefnan taldi
óhjákvæmilegt að breyta eldri lán-
um teknum hjá sjóðnum til sam-
ræmis við núgildandi útlánareglur
hans til að koma í veg fyrir stöðvun
á rekstri fyrirtækja á sviði ferða-
mála, sem hneppt eru í fjötra
þessara ,,ólána“ eins og það er
orðað.
Vaxta- Vísitala (V) Láns-
fótur Gengi (G) tími
1975 9.5 100%(V) 15 ár
1976 9.5 100% (V) 15 ár
1977 13.0 50% (G) 8— 15 ár
Tekin Framlag á Eigið fé Lán-
lán fjárlögum í útlánum veitingar
1970 6.0 1.0 (-2.1) 4.9
1971 12.0 5.0 (- 1.4) 15.6
1972 25.0 5.0 (-0.9) 29.1
1974 8.0 10.0 2.7 20.7
1975 0.0 15.0 8.1 23.1
1976 0.0 16.2 (-6.2) 10.0
1977 53.0 25.0 9.0 87.0
23