Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 45
1. Gjaldeyrisreikningar íeinkaeign
Á blaðsíðu 153 í skýrslunni er gerð grein
fyrir þremur leiðum til aö ávaxta fé erlendis.
Ein leiðin er sú að rýmka reglu um gjaldeyr-
iseign einstaklinga. Neðarlega á sömu blaó-
síðu er rætt um þessa einkareikninga sér-
staklega og þar segir: „Búast mætti við, aö fé
rynni útaf einkareikningum þegar hætta væri
talin á gengisbreytingu".
Það virðist fjarstæða að ætla að peningar
renni útaf einkareikningum fyrir gengisfell-
ingu við því gengi sem þá gildir (Um gengis-
hækkanir ísl. krónunnar virðist óþarfi að
ræða). Sérhver gjaldeyriseigandi hlýtur að
halda sem fastast í gjaldeyri sinn við slíkar
aðstæður og þá helst reyna að koma sem
mestu af fé inn á reikning sinn. Fyrir gengis-
fellingu er þannig hætta á að gjaldeyrir
streymi inn á þessa reikninga en ekki út af
þeim og slíkt innstreymi væri til óþurfta fyrir
gengisfellingu þar sem það yki á gjaldeyris-
eftirspurn.
Að vísu er jafnframt hugsanlegt og líklegt
að gjaldeyrir streymdi út af einkareikningum
fyrir gengisfellingu en við hærra verði en
skráðu gengi. En slíkt útstreymi af einka-
reikningum yrði til að draga úr gjaldeyriseft-
irspurn almennt og dragi því jafnframt úr á-
stæðum fyrir gengisfellingu eða minnkaði
upphæðina sem fella þyrfti gengið um. En þar
með heföu einkareikningarnir án nokkurrar
miðstjórnar gengt því hlutverki aö jafna,
draga úr og milda gengisbreytingar.
Þannig er eina hættan sem fólgin er í
einkareikningum sú aö þeir auki eftirspurn
eftir gjaldeyri fyrir gengisfellingar við að þá
streymi inn á þá gjaldeyrir, þvert á móti því
sem haldið er fram á skýrslum aó hætta sé í
þvi fólgin aö peningar streymi út af þeim. En
slíkt innstreymi er við íslenskar aðstæöur
mjög auðvelt aö hefta þótt eðlilegast væri að
líkindum að gera það ekki þar sem slíkt inn-
streymi gefi augljóslega til kynna að gengis-
breytingar væri þörf.
2. Bindiskylda og ávöxtun fjár erlendis
Þær þrjár leiðir sem í skýrslunni eru taldar
til að ávaxta fé erlendis eru rangnefndar. Það
eru í skýrslunni engar leiðir nefndar til að
ávaxta fé heldur er aðeins bent á leiðir til að
draga saman fé sem síðan mætti ávaxta inn-
anlands eða erlendis. (Einkareikningarnir hafa
mum
Sii
EFNAGERÐIN VALUR
Kársnesbraut 124 Kópavogi
hefir einnig á boðstólum marmelaði íssósur,
sinnep, remúlaði o.fl.
Hringið í síma 40795.
45