Frjáls verslun - 01.08.1978, Qupperneq 59
Aætla að framleiða fyrir
800 milljónir í ár
eftir það. Plastmálningin er
stærsta framleiðslutegundin, en
auk hennar framleiðir Málning hf.
olíumálningu, klorgúmmálningu,
ýmsar lakktegundir, lím, þynna,
þéttiefni, steypuhjálparefni og
gólfefni alls kyns.
Stöðugt framleiðslueftiriit í rann-
sóknarstofu.
Fyrirtækið rekur rannsóknar-
stofu, þar sem fram fer stöðugt
framleiðslueftirlit, þróun nýrra
vörutegunda og veitt er tæknileg
ráðgjafarþjónusta. Á rannsóknar-
stofunni starfa þrír verkfræðingar
og tveir aðstoðarmenn. Ekki eru
mörg einkafyrirtæki hér á landi,
sem reka rannsóknarstofu, en
hins vegar hafa málningarfram-
leiðendur rekið slíkar rannsóknar-
stofur. Rannsóknarstofa Málning-
ar er ein stærsta einkarannsókn-
arstofa á landinu.
Sífellt er verið að þróa nýjar
I rannsóknarstofunni hjá Málningu hf.
Málning hf. er að leita
fyrir sér um lóð í ná-
grannabyggðarlög-
unum
Við Kárnesbrautina í Kópavogi
er eitt elzta iðnfyrirtæki í Kópa-
vogi, Málning hf., sem stofnað var
1953. Þegar fyrirtækið hóf starf-
semi sína, störfuðu hjá því um 15
manns, en nú eru starfsmenn milli
50—60. Á síðasta ári framleiddi
Málning hf. um Vh milljón lítra af
málningu og öðrum framleiðslu-
vörum og velta fyrirtækisins var
um 600 milljónir. ( ár er áætlað að
framleiða fyrir um 800 milljónir.
Þeir Stefán Guöjohnsen og
Öskar Maríusson eru fram-
kvæmdastjórar Málningar hf.
Stefán viöskiptalegur fram-
kvæmdastjóri, en Óskar tækni-
legur framkvæmdastjóri. F. V.
spjallaði við þá nýlega og fékk
upplýsingar um starfsemi fyrir-
tækisins.
Fyrstir í framleiðslu plastmáln-
ingar hér
Eigendur Málningar hf. komu frá
málningarverksmiöjunni Hörpu,
en tildrögin að stofnuninni voru
þau, að komin var fram nýjung í
framleiðslu þ. e. plastmálning, og
var fyrirtækið stofnað með það
fyrir augum að framleiða þessa
málningu með framleiðsluleyfi frá
fyrirtækinu Glidden í Bandaríkjun-
um.
Fljótlega eftir stofnunina fór
framleiðslutegundum fjölgandi og
hefur þeim fjölgað jafnt og þrétt
59