Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 60

Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 60
vörutegundir og endurbæta fram- leiösluna. Ein tegund málningar, sem rutt hefur sér mjög til rúms á íslenzkum markaöi, enda gerö fyrir íslenzkar aöstæöur, en hraun- málningin, en þessi málning er þróuö á rannsóknarstofu Máln- ingar hf. Hraunmálningin, sem er sendin akrýlmálning, var fyrst sett á markaðinn 1966, en hefur síöan verið í sífelldri þróun. Þaö var ekki fyrr en 1974, sem henni var ætlaður stór hlutur á íslenzka markaönum. Hraunmálningin hefur verið mest notuö utanhúss, en oft notuð innanhúss til að ná fram sérstakri áferð. Hafa selt framleiðsluleyfi til Fær- eyja íslenzkir málningarframleiöend- ur standa frammi fyrir því, að tollar á innfluttri málningu lækka og 1980 eiga þeir aö falla úr gildi. Þeir Stefán og Óskar töldu, aö íslenzk framleiösla gæti fyllilega staöið samanburö viö innflutta málningu hvað verð og gæöi snertir, en hins vegar gætu íslenzku framleið- endurnir veitt miklu meiri ráö- gjafarþjónustu. Undanfarin ár hefur málning veriö flutt út til Rússlands. Þaö hafa aðallega veriö Harpa, sem er stærsti útflutningsaðilinn á máln- ingu og Málningarverksmiðjan Sjöfn, sem flutt hafa út málningu. Málning hf. hefur ekki náö samn- ingum um útflutning á málningu, þrátt fyrir að verð og gæöi væri fyllilega samkeppnisfært aö mati erlendra kaupenda. Málning hf. hefur selt fram- leiðsluleyfi á skipamálningu til Færeyja, og veitt tækniaðstoð við aö reisa málningarverksmiðju þar, en hún er sú fyrsta og eina starf- andi málningaverksmiðjan í Fær- eyjum. Auk skiþamálningarinnar framleiöir þessi málningarverk- smiðja grunnmálningu og fúa- varnarefni. Leita fyrir sér um lóð. Áriö 1973 lauk þeirri samvinnu, sem Málning haföi átt viö Glidden um framleiðsluleyfi á plastmáln- ingu, en tekin upp samvinna við danska fyrirtækiö S Dyrup & Co., sem er annaö stærsta málningar- framleiðslufyrirtæki í Danmörku. Málning hf. framleiöir nú bæöi plastmálningu og húsgagnalökk meö framleiðsluleyfi frá þessu danska fyrirtæki. Málning hf. býður milli 15 og 20 staðalliti í plastmálningunni, en auk þess er hægt að bjóöa hundruö mismunandi lita með litavélum. Stefán og Óskar sögðu, að nú væru mest ráðandi Ijósir litir innanhúss, en utanhúss væru vin- sælastir grádrappaöir grunnlitir meö líflegum dökkum litum í inn- fellum. Þeir sögðu í lok samtalsins, að nú væri oröið nauðsynlegt fyrir fyrirtækiö aö stækka viö sig hús- næöi og væru þeir að leita fyrir sér um lóö hjá nágrannabyggðarlög- unum, þar sem bæjaryfirvöld hafa ekki boðið fyrirtækinu viöunandi aöstæöur í Kópavogi. Annars hefði þeim líkaö mjög vel aö reka fyrirtækiö í Kópavogi og þaö heföi verið stefna þess aö fá Kópavogs- búa til starfa í fyrirtækinu. FLATKÖKUR Magn: 2 stk. Innihald: Rúgmjöl, heilhvoiti, hveiti, feiti og salt. Bakarí Fríðríks Haraldssonar sf Káranesbfaut 96, KópavoQi 9 4 13 01 Ef svo er, þá sérhæfum við okkur í framleiðslu á flatkökum og kleinum. Bæði eru ákaflega vinsæl með kaffi og fátt er gómsætara í nestispakkanum. Lcitið upplýsinga nú þegar. KLEINUR Maorc 0 alk. lonlhaM: Hmitl. tykur. ger. nfMk. on toytMdropir. Bakarí Friðriks Haraldssonar s.f., Kársnesbraut 96, Kópavogi, sími 41301. 60

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.