Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1978, Síða 77

Frjáls verslun - 01.08.1978, Síða 77
þáverandi forstjóri blaðaútgáfu Gutenberg, Dan Folke, sem hafði líka getið sér orö fyrir tónsmíðar sínar. Tilgangur hans með ferðinni var aðeins einn: Að koma með Andrés önd og félaga til Dan- merkur. Nú vita menn í Danmörku, ungir og aldnir, og lesendur í ná- grannalöndum Dana, að Dan Folke fór ekki erindisleysu. Áhugi hans á Andrési önd, haföi vaknað, þegar hann dvaldist sem flóttamaður í Svíþjóð frá árinu 1943 til stríðsloka. Þar var hann í sambandi við ameríska blaða- menn og komst á snoðir um að í Bandaríkjunum væri gefið út barnablað, sem Walt Disney stæði að. Hann vildi tryggja fyrirtæki sínu útgáfuréttinn á því. Þess vegna var hann meðal fyrstu farþega, sem fóru flugleiðis frá Evrópu til Bandaríkjanna eftir ófriðinn og vestan hafs hitti hann Walt Disney að máli. Þeir urðu mestu mátar og fyrir framan nefið á helztu blaðaútgáfufyrirtækjum í Evrópu, sem vissulega höfðu mikil áhrif og aðstöðu, tókst honum að fá einkarétt handa Gutenberghus til að gefa út Andrés önd og félaga í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Vestur-Þýzkalandi og í Finnlandi í samvinnu við annað útgáfufyrir- tæki. Undirbúningur að útgáfunni tók nokkurn tíma. Það var pappírs- skömmtun í Danmörku og Andrés önd varö að sýna nokkra biðlund. Þetta vandamál var aftur á móti ekki fyrir hendi í Svíþjóð og þar hélt Andrés önd innreiö sína á evrópskan vettvang undir nafninu Kalle Anka. Hinn 1. marz 1949 var svo röðin að lokum komin að Dönum og Anders And & Co. var þá fyrst gef- ið út sem mánaðarrit í 75 þús. eintaka upplagi. Uppvaxtarár Andrésar Upphaf Andrésar andar má rekja aftur til ársins 1932 þegar hann birtist sem kvikmyndastjarna í teiknimyndum. Það kom Walt Disney nokkuð á óvart aö þetta afkvæmi hans, sem varð fyrst og fremst þekkt fyrir ólund og reiði- köst en óskaplega bjartsyni og ævintýramennsku skyldi öðlast þær vinsældir, sem raun varð á, og verða í forystu fyrir marglitum og fjölbreytilegum hóp nýrra sögu- persóna sem hann skóp fyrir hvíta tjaldið. Danir höfðu kynnzt Andrési önd í kvikmyndunum en ekki í blöðum. Sölustjórinn í Guten- berghus ákvaö að Andrés skyldi fljúga. Hann lærði flug og lét mála mynd af Andrési á litla einkaflugvél útgáfufyrirtækisins, sem síöan var notuð til að fara í heimsóknir og kynningarferðir um Danmörku. Hundruö blaðasala og þúsundir barna fóru í fyrsta skipti í flugferð í þessari vél, sem notuð var til að kynna Andrés í 15 ár. Þar sem vélin lenti, streymdu að þúsundir barna og heimsóknirnar fengu rækilegt umtal í blöðum viðkomandi byggóarlaga. Útgáfudögum fjölgað í maí 1956 þótti ekki nóg aö blaðiö kæmi út einu sinni í mánuöi. Þá var afráðið að gefa það út hálfsmánaðarlega. Frá því íjanúar 1959 hefur Anders And & Co svo komið út sem vikublað. Nú seljast 200 þús. eintök af blaðinu í Danmörku og það er talið aö fjórir til fimm lesi hvert eintak, ekki aöeins börn, því að Andrés á fjölmarga aðdáendur í hópi full- orðinna. Blaðið hefur einnig náð mikilli útbreiðslu í Svíþjóð, Noregi V.-Þýzkalandi og Finnlandi og danska útgáfan hefur náð mikilli sölu hérlendis eins og vikið var að í inngangi að þessari grein. Og að- standendur blaðsins í Danmörku benda á að það sé ekki svo lítið sem þessi Andrés geti komið til leiðar því að hann hafi stuðlað að stórauknum áhuga íslenzkra skólabarna á danskri tungu! Velheppnuð kynning Útbreiöslu blaðsins eiga útgef- endurnir að þakka mikilli kynn- ingarstarfsemi eins og áður er vikið að. Til viðbótar flugferðunum var efnt til skemmtana þar sem sýndar voru kvikmyndir með aðal- hetjunni, og persónur úr mynda- sögum blaðsins komu þar fram „Ijóslifandi" og sprelluðu fyrir börnin. Fyrir allmörgum árum var efnt til fyrstu Andrésar andar-leik- anna í Noregi en það er skíðamót barna. Þeir sem vinna á hverju móti komast í aðalkeppnina, Kalle Anka-mótið. Þessi hugmynd hefur verið framkvæmd í Svíþjóð einnig Þegar Andrés kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1934 var hann háls- langur og langnefjaður ... 77
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.