Frjáls verslun - 01.10.1978, Qupperneq 9
Páll Heiðar Jónsson, útvarpsmaður sér
ásamt Sigmari B. Haukssyni árla morguns,
fimm daga vikunnar, um útvarpsþátt sem heitir
„Morgunpósturinn“. Hefst þátturinn kl. 7.25 á
morgnana og er sendur út í 45 mínútur. Þætt-
inum er ætlað að vera nokkuð hraður, fræðandi
og skemmtilegur, að sögn Páls Heiðars.
„Morgunpósturinn" er uppbyggður þannig,
að í honum er blandað efni, sem hentar í dag-
lega lífinu, viðtöl við fólk í athafnalífinu, fjallaö
um atburði á listasviðinu s. s. kvikmyndir, flutt
ýmislegt fréttatengt efni bæði af innlendum og
erlendum vettvangi, gefnar ráðleggingar varð-
andi mataruppskriftir og fjölmargt fleira.
Þeir Páll Heiðar og Sigmar eru í tengslum við
hóp manna, sem eru búsettir erlendis, sem
flytja þeim ýmsar fréttir, sem eru ofarlega á
baugi erlendis, þar á meðal London, Hamborg,
Dublin, París og Barcelona. Einnig er í þættin-
um kastað fram spurningunni: „Hvernig leggst
dagurinn í þig?“ og er hún lögð fyrir ýmsa sem
standa í stórræðum þann dag. Fluttar eru
glefsur úr blöðum og tímaritum í „Morgun-
póstinum", en þátturinn er í beinni útsendingu.
Frá því árið 1971 hefur Páll Heiðar Jónsson
verið starfsmaður útvarpsins og á tímabilinu
1971—1976 geröi hann nákvæmlega 310 út-
varpsþætti um ýmislegt efni. Er þarskemmst að
minnast ýmissa umræðuþátta og þátta úr at-
vinnulífinu. Hann flutti einnig reglubundið í 3 ár
„Lundúnapistil", en hann var búsettur í Bret-
landi í 9 ár.
Páll Heiðar Jónsson er fæddur 16. febrúar
1934 í Vík í Mýrdal, tók Verzlunarskólapróf
1952 og starfaði fyrst við skrifstofustörf, m. a. á
skrifstofu Flugfélags íslands í Lundúnum.
Þórður Friðjónsson var fyrir skömmu ráðinn
deildarstjóri hagdeildar Félags íslenzkra iðn-
rekenda, en það er ný deild í mótun innan fé-
lagsins.
Helztu verkefni hagdeildar, að sögn Þórðar
eru í fyrsta lagi, að hagdeild ber aö fylgjast með
almennri efnahagsþróun á íslandi og erlendis,
og vega og meta áhrif þróunarinnar á íslenzkan
iðnað.
í öðru lagi að útvega í sem aðgengilegustu
formi tölulegar upplýsingar til að mynda bak-
grunn fyrir stefnu Félags íslenzkra iðnrekenda í
hagfræðilegum málefnum. I þriðja lagi vinnur
hagdeildin að endurbótum á þeim starfsskil-
yrðum, sem opinberir aðilar búa iðnaðinum.
Þóröur sagöi, að í fjórða lagi mætti nefna
sem verkefni hagdeildar, að stuðla að virku
upplýsingastreymi milli félagsmanna Félags ís-
lenzkra iðnrekenda og hagdeildar með það
fyrir augum að efna samstöðu í efnahagsmál-
um.
Þórður Friðjónsson erfæddur 2. janúar 1952
í Reykjavík. Hann varð stúdent frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1972, og lauk viðskiptafræði-
prófi frá Háskóla Islands vorið 1977.
Fór hann síðan til framhaldsnáms í hagfræði
og nam við Queens háskóla í Kanada með té-
lagsmálahagfræði og peningahagfræði sem
aðalgreinar, en þaðan lauk hann prófi á s. I.
sumri.
Upp á síðkastið hefur verið mikið talað um,
að erlend innkaup á iðnaöarvörum skipi óeðli-
lega mikinn sess hjá opinberum aðilum, miklu
meiri en í öðrum aðildarlöndum OECD, sem
frekar kaupa eigin framleiðslu en annarra
landa, en hins vegar sé þessu snúið við hér á
landi.