Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1978, Page 26

Frjáls verslun - 01.10.1978, Page 26
Opinberar álögur á bíleigendur óvíða jafnháar og hérlendís VERKSMIDJAN Innkaupsvcrð bílsins erlendis. FLUTNINGUR Fluningsgjald. uppskipun vátryggíng, bankakostnaður o. fl. RÍKIÐ Aðflutningsgjöld og söluskattur. INNFLYTJAND Álagning og standsetning. 28,5% 6.1% 58,9% 6,5% HEÍLDARVERÐ TIL KAUPANDA 100% Mörgum hefur orðið á að spyrja hversvegna sé svo óheyrilega dýrt að gera út bíl á ís- landi. Svarið er langtum einfaldara en flesta grunar í fljótu bragöi. Að meginstofni er reksturskostnaður bifreiðar byggður upp af tveimur þáttum sem eru kostnaður og skattlagning. Bílgreinasambandið hefur bent á, að af andvirði hvers nýs bíls renni um 60% til ríkissjóös í einu og öðru formi skattlanging- ar. Það þýðir, aö bíll sem kostar 4.5 milljónir króna til kaupanda hefur aflað ríkissjóði tekna sem nema 2.7 milljónum króna. Mun þetta vera meðal hæstu skatta, sem ríki í Evrópu leggja á nýja bíla. En það er ekki öll sagan sögð. Félag ísl. bifreiðaeigenda hefur kannað skattlagningu ríkisins á bíleigendur og komist að þeirri niðurstöðu að hún nemi a. m. k. 22 milljörðum króna á árinu 1978. Þessir skattar greinast í fjóra höf- uðliði sem sýndir eru hér á eftir: hefur skattlagning á bíleigendur nærri fimmfaldast að krónutölu. Hinsvegar hefur framlag ríkisins til vegamála minnkað á sama tima úr 55,8% af heildarskattgjöldum bíl- eigenda og í 45,2% 1978. Á þenn- an hátt hefur ríkið minnkað þjón- ustu sína við bíleigendur um 10,6% þegar um er að ræða vega- gerö í landinu. Bifreiðaeftirlit sem þjónusta Á árinu 1978 er gert ráð fyrir að reksturskostnaður Bifreiðaeftirlits ríkisins verði 251 millj. kr. Þar af er bifreiðaskoðunin kosti 47 milljónir ef dæma má af því skoðunargjaldi sem bíleigendum er gert að greiða. Það sem bíleigendum hef- ur lengst af blöskrað er, hve lítt ríkið hefur búið að þeim starfs- mönnum sínum sem annast reglu- bundnar skoðanir. Hafa fjölmargir bent á að mióað við skattlagningu sé hvergi á Norðurlöndum jafn lé- leg aðstaða til skoðana og enn sé því svo farið, að skoðun bifreiða- eftirlitsins sé engin trygging fyrir því, að í bíl geti ekki leynst stór- hættulegir gallar. 1. Tekjur vegasjóðs (benzín- og gúmmígjald, vegaskattur) 2. Bein gjöld (innfl.gjald af bílum, skráningargj., skoðun) 3. Tollar (af bílum, benzíni, dekkjum, varahlutum) 4. Söluskattur (af bílum, benzíni, dekkjum, vara- hl.,trygg.) Millj. kr. 5800 3251 6730 6340 Samtals 22.121 Það er að sama skapi fróðlegt að líta á þá þjónustu sem ríkið veitir bíleigendum og greidd er með skattgjöldum. Frá því 1973 sjálft bifreiöaeftirlitið talið kosta tæpar 225 milljónir og námskeiö og bílpróf rúmar 26 milljónir. Inni í þessum tölum er áætlað að sjálf Bent hefur verið á aö skipulags- breytingar á skoðun bíla gætu haft það í för með sér, að hægt væri að framkvæma mun fullkomnari skoðun, sem tryggt gæti aö ekki leyndust gallar í bílum, fyrir svip- aða upphæð og nú er varið til ó- fullnægjandi skoðunar. Á Norður- löndum hefur sá háttur verið hafður á, að bílar eru ekki skoðaðir fyrr en þeir eru orðnir þriggja ára gamlir. Það skipulag hefur reynzt vel, sérstaklega þar sem þjón- ustuumboð hafa boðið ódýrar reglubundnar skoðanir á þeim bíl- um sem þau selja. I Svíþjóö annast sérstakt fyrirtæki AB Svensk Bil- 26

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.