Frjáls verslun - 01.10.1978, Síða 57
gerlega sjálfvirkt. Ég held það sé
ekki ofsagt að í dag stöndum við
tæknilega mun framar öórum fyr-
irtækjum á þessu sviði hér heima."
Óhentugar rúðustærðir.
„Þessi framleiösla hér á við
marga vanda að stríöa, sem vert er
aö minnast á, því þá mætti leysa, ef
vilji væri fyrir hendi. Til dæmis
varðandi rúðustærðir. Islendingar
nota miklu fleiri, mismunandi
stærðir af gleri en nokkur önnur
þjóð. Hér er miklu meiri munur á
því stærsta og því minnsta en
annars staðar. Til dæmis þekkjast
þessar löngu, mjóu rúður, sem viö
notum í opnanlega hluta glugga
óvíða annars staðar. Þannig erum
við oft að framleiða hér rúðu-
stærðir, sem eru geypilega óhent-
ugar.
Annar galli er sá, að hér á landi
erekkerttil, sem heitirstaðlað mál,
þannig að framleiöendur geta
ekkert unnið sér í haginn á daufum
tímum, til dæmis um miðbik vetrar
með því að framleióa á lager. Þó
ætti að vera auðvelt að setja ein-
hverja staðla, til dæmis fyrir
íbúðablokkir. Það gæti lækkað
kostnaðinn verulega. Ef hægt væri
að framleiða eftir stöðlum á lager,
mætti vafalaust minnka kostnað í
gleri um ein fimmtán prósent, ef
ekki meir. Þegar gler í meðal ein-
býlishús getur kostað yfir eina
milljón króna, gefur auga leið að
það myndi borga sig vel.“
Ónákvæmni í gluggaframleiðslu
„Hins vegar er ekki bara svo að
hér séu engir staðlar til. Þetta
gengur svo langt, að þegar fram-
leiða á gler í blokkir, til dæmis, þá
er ekki nóg að taka mál af einum
glugga. Ónákvæmni gætir svo í
framleiðslu glugganna sjálfra, að
þar getur munað mörgum milli-
metrum á rúðustærð, þótt gluggar
eigi aó vera jafn stórir. Einnig
kemur oft fyrir að gluggar, sem
steyptir eru í mótum, verða horn-
skakkir, og því er þessi framleiðsla
öll óþarflega dýr, miðað við það
sem hún þyrfti að vera.
Samdráttur hefur verið greini-
legur á þessu sviði í ár. Sýnist mér
glernotkun hér ætla að minnka
sem svarar um mánaöarnotkun,
frá því sem var í fyrra. Þá hefur
meðalstærð rúða minnkað nokk-
uð. Við höfum þannig aukið fram-
leiðslu og sölu nokkuð frá því sem
var á sama tíma í fyrra. Aö fer-
metrafjölda í gleri nemur aukning-
in sem svarar vikuvinnslu, en að
stykkjafjölda sem svarar mánað-
arvinnslu. Af því má marka minnk-
andi markaðshlutfall. Þarna sé ég
að komin er fram andstæða, þar
sem er annars vegar fullyröing mín
um samdrátt í glersölu, hins vegar
sú staðreynd að okkar sala hefur
aukist. Ég tel að vísu að við höfum
aukið markaðshlutdeild okkar
hlutfallslega, en þó verður að
gæta þess, að í upphafi þessa árs
lagði eitt framleiðslufyrirtæki á
þessu sviði niður starfsemi sína,
það var Cudo-gler í Kópavogi,
þannig að þeirra sala hefur dreifst
á okkur hina.
Hvað framundan er? Við erum
bjartsýnir. Þau fyrirtæki, sem nú
eru starfandi, sinna markaðnum
vel. Þau hafa nokkra umframgetu,
þannig að samkeppnin er heil-
brigð. Þetta viröist allt á réttum
kili."
f verksmiðjusal Glerborgar
57