Frjáls verslun - 01.10.1978, Side 64
Eru á hjólum við að finna
verkefni
„Þetta fyrirtæki er orðið ansi
gamalt," sagði Einar Ágústsson,
framkvæmdastjóri Blikksmiðju
Hafnarfjarðar, við blaðamann
Frjálsrar verzlunar, þegar litið var
við hjá honum. „f þessu húsi hefur
það verið frá því 1958, þar áður var
það í húsinu Dvergasteini, senni-
lega frá því árið 1947 og þar áður
var smiðjan staðsett í gamla
Flensborgarhúsinu frá því 1945.
Raunar hét smiðjan áður blikk-
smiðjan Dvergasteinn, þannig aö
húsiö Dvergasteinn dregur líklega
nafn sitt af henni.
Hér áöur fyrr voru verkefni
blikksmiðja mun fjölbreyttari en í
dag. Þá voru smíðaðir ýmsir nýti-
legir hlutir, svo sem pottar og
pönnur. Einnig var þá til nokkuð
sem hét pjátursmíöi, en úr pjátri
voru til dæmis smíðaðar niður-
suöudósir og fleira."
Smíðuðu loftræstikerfi í áninga-
stöð á Hlemmi
,,í dag eru stærstu verkefnin hjá
okkur loftræstikerfi, sem yfirleitt
eru tilboðsverkefni. Við unnun til
dæmis loftræstikerfið í nýja húsið
á Hlemmi. Það var ákaflega
skemmtilegt verkefni, því þar er
loftræstingin sýnilegur hluti bygg-
ingarinnar, hluti af arkitektúrnum.
Annars er blikksmíði ákaflega
vítt svið, enn í dag, þótt úr henni
hafi fallið ýmsir þættir, sem áður
fyrr voru stórir. Aðrir hafa líka
komið í staðinn.
Hvað framtíðina á þessu sviði
varðar er allt ákaflega óljóst í dag.
Hingað til hefur þetta gengið
ágætlega, en ég get engu spáð um
frekari framvindu. Yfirleitt eru út-
boð mest vor og haust, en þetta
haustið hefur ekki eitt einasta verk
verið boðið út. Þá á ég einkum við
hið opinbera. Hins vegar er
ástandið ef til vill villandi, því eins
og allir vita var landiö nánast
stjórnlaust um tíma og því er ekki
hægt aö spá í dag um hvað verður
þegar þessi ríkisstjórn veröur búin
að átta sig að fullu. Það er ekki
vitað hve miklar sparnaðarráð-
stafanir hennar veröa, né hvar þær
koma niður.
Byggja afkomu sína á opinberum
framkvæmdum
„Því er ekki aö leyna að svona
fyrirtæki byggja afkomu sína mikið
á skólum og öðrum byggingum
hins opinbera, þar sem loftræsti-
kerfi eru veruleg verkefni. Því
tengist afkoma okkar ákaflega ná-
ið því sem ákveðið er um bygging-
arframkvæmdir hins opinbera og
getur það orðið æði alvarlegt mál
fyrir okkur, ef þar dregst saman að
marki. I’ dag er maður á hjólum við
að finna verkefni, en ég er raunar
vanur því, þar sem ég er bæði
framkvæmdastjóri, skrifstofu-
stúlka, símastúlka og sendisveinn
hér."
MASTER M
HYDRAULIC
VINDUR
1,7—5,5 tonna
FJÖLHÆGAR
AREIÐANLEGAR
ÖFLUGAR
VÉLTÁK t
Einkaumboð
VÉLAVERKSTÆÐIÐ VÉLTAK H/F
Hvaleyrarbraut 3 Hafnarfirði sölusími 54315
64