Frjáls verslun - 01.03.1979, Blaðsíða 91
Álafoss flytur út ullarfatnað
fyrir 4 milljarða í ár
íslenzk ull blönduð
ástralskri til að fá
fínna band en notað
hefur verið almennt í
vetrarfatnaði. Nýja
línan er ætluð fyrir
vor- og sumarmarkað.
Ullarvinnufyrirtækið Álafoss h/f
kynnti fataframleiðslu sína, fyrir
þetta ár, blaðamönnum ekki alls
fyrir löngu. Þar kom m.a. fram að
fyrirtækið hyggst flytja út ullar-
fatnað, að verðmæti 4 milljarðar
króna á þessu ári, á móti 2 mill-
jörðum á árinu 1978. Hér er því um
100% aukningu að ræða en út-
flutningur nemur um % af heildar-
veltu fyrirtækisins.
Álafoss h/f var stofnað árið
1896 en ullariðnaður hófst hér-
lendis upp úr síðustu aldamótum.
Árið 1969 hóf Álafoss, fyrst ís-
lenskra fyrirtækja, að flytja út
ullarfatnaó, í þeirri mynd, er hann
nú þekkist og þá var verðmæti út-
flutningsins 3.7 milljónir, þannig
að gífurlegur vöxtur hefur orðið á
þessu sviói á þeim 10 árum sem
fyrirtækið hefur staðið að útflutn-
ingi. Helstu markaðir Álafoss eru
Bandaríkin, Kanada, Vestur-
Evrópa og Japan en alls var flutt út
til 28 landa á síðasta ári.
Fyrirtækiö sjálft rekur prjóna- og
saumastofu, þar sem um 300
manns starfa, en auk þess eru
u.þ.b. 20 prjóna- og saumastofur
út um allt land sem framleiða fatn-
að úr hráefnum frá Alafossi og
einnig sér Álafoss um sölu á þeim
fatnaði.
Blaðamönnum var kynnt fram-
leiðslan í ár og vakti mesta athygli
ný lína sem nefnd hefur verið
,,Álafoss Breeze'". Fatnaöur sá
sem hér um ræðir er ætlaður á vor-
og sumarmarkaðinn en öll fata-
framleiðsla fyrirtækisins fram að
þessu hefur verið vetrarfatnaöur.
Nýja vor- og sumartízkan frá Álafossi.
89