Frjáls verslun - 01.03.1979, Blaðsíða 33
gjöld sem eru svo lág að vart er
staðið undir kostnaði, og jafnvel
langt undir því. Sem dæmi má
nefna, að Texas International
Airlines seldi fyrir skömmu fargjald
á milli Las Vegas og Dallas Fort
Worth fram og til baka, staðfesta
bókun á aðeins 39 cent (US $). Og
í desember sl. borgaði Air Florida
350 farþegum jafnvirði eins
bandaríkjadals hverjum fyrir að
fljúga með félaginu fram og til
baka í fyrstu ferð félagsins á nýrri
flugleið, Miami/Ft. Lauderdale til
Bahamaeyja.
Já, trúi þessu hver sem vill, en
sem stendur virðast þetta ekki
óalgengar brellur til að kynna nýj-
ar flugleiðir í því fargjaldastríði
sem nú ríkir.
Bitnar þetta á viðhaldi?
En einhversstaðar hlýtur taþið á
of lágum fargjöldum að koma
niöur. Búið er að rugla svo dóm-
greind almennings í þessum mál-
um, að fólk lítur orðið aðeins á
lægstu töluna, en athugar hins-
vegar ekki stór atriði, s.s. þjónustu
um borð, hvort settir eru 500 far-
þegar í vél í stað 350 og einnig er
það sþurning hvort of lág fargjöld
komi ekki niður á viðhaldi og
endurnýjun flugvélanna. Eða eins
og Bruce Haxthausen upplýsinga-
fulltrúi Pan Am sagði, ,,Við getum
ekki fjárfest í nýjum flugvélum á
meöan aðaláherslan er lögð á að
flytja farþega sem greiða 5 cent á
hverja flogna mílu. Það þyrftu að
vera minnst 10-19 cent til að það
myndi borga sig að fara út í nýjar
fjárfestingar".
Það hefur heldur ekki bætt
stöðu áætlunarflugfélaganna að
nú hafa leiguflugfélög eins og
World Airways, Capitol Inter-
national Airways og Trans Intern-
ational Airlines fengið leyfi til
áætlunarflugs. Þetta leyfi fengu
félögin með skírskotun til breyttra
reglna C.A.B.-nefndarinnar.
Hyggst t.d. World Airways hefja
reglubundið flug í maí nk. frá fimm
bandarískum borgum til Amster-
dam á mjög hagkvæmum far-
gjöldum, að eigin sögn.
Er nú svo komið í flestum tilfell-
um aö flugfélög geta lækkað far-
gjöld sín innan Bandaríkjanna allt
að 70% og hækkað þau allt að 5%
án þess að til komi samþykki
bandarískra flugmálayfirvalda.
Staða Flugleiða
Flugleiðir hafa ekki farið var-
hluta af hinni hörðu samkeppni
sem háð er á N-Atlantshafinu í
dag. Félagið er ekki stórt í saman-
burði við marga keppinautana, en
stærðin segir ekki allt. Árið 1977
voru Flugleiðir með bestu sæta-
nýtingu þeirra flugfélaga sem
flugu þessa leið, eða 75.5%, en sl.
ár var sætanýtingin 79.1% sem er
meö því besta sem gerist nú. Loft-
leiðir buðu um árabil lægstu far-
gjöld sem þekktust á Atlantshafs-
leiðinni. oa nvtur félaaið enn
viðurkenningar sem brautryðjandi
á þessu sviði. Miðað við önnur
flugfélög bjóða Flugleiðir nú mjög
lág fargjöld á N-Atlantshafinu, og
er fargjaldið New York—Luxem-
borg fram og aftur nú $ 299, en
flugfélögin National og KLM bjóða
New York—Amsterdam, fram og
aftur fyrir $ 263 (sérfargjald). New
York—London býður hinsvegar
Freddy Laker fyrir $ 250-260, og er
það án ýmissar þjónustu sem t.d.
Flugleiðir veita. Má þar telja mat
og vín sem verður að greiða fyrir
aukalega sé flogið með Skytrain
Laker’s, auk þess sem hann selur
farmiöana einungis í eigin skrif-
stofum og sölubásum, á meðan
hægt er að kaupa farmiða með
áætlunarflugfélögum eins og
Flugleiðum á öllum ferðaskrifstof-
um og eigin söluskrifstofum.
I maí nk. mun Air France bjóða
nýtt fargjald á flugleiðinni New
York—Paris (vacation fare), og er
það $ 363 fram og til baka. Þrátt
fyrir aö þetta sé í áætlunarflugi
ætlar félagið að skella 500 farþeg-
um í Boeing 747S sem vanalega
tekur 389 farþega, og veitingarnar
verða ,,box dinner”, eða einfaldur
matarpakki í stað hins margróm-
aða matseðils Air France. Að vísu
geta tilvonandi farþegar félagsins
fengið ögn betri viðurgjörning og
meira fótarými fyrir lítið meiri pen-
ing ef þeir bóka farið með 30 daga
fyrirvara, og kemur þá til svokallað
APEX fargjald.
Fyrir ekki löngu missti banda-
ríska fluqfélaqió Pan Am flugleyfi
31