Frjáls verslun - 01.03.1979, Blaðsíða 61
Mikið er selt af Ijósmyndavörum
í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli,
ekki hvað síst Ijósmyndavélum, en
Björn sagði, að hann giskaði á að
upp undir einn þriðji af heildarsölu
Gevafoto færi fram þar.
Hann sagöi einnig, að fyrirtækið
hefði átt góð vlðskipti við Japani
þessi ár. Yfirleitt eru gerðar áætl-
anir um pantanir fyrir árið í senn,
en japönsku framleiðendurnir fara
oftast fram á það.
Fyrir um það bil fimm árum síð-
an fór fyrirtækið Stáltæki hf. að
selja vasareiknivélar og tölvuúr
frá japanska fyrirtækinu Casio. Á
síðasta ári seldi fyrirtækið Casio
vasareiknivélar og tölvuúr fyrir um
65 milljónir króna, en þá var hlut-
deild Casio vasareiknivéla á
þessum markaði hér á landi 62%.
Mikael Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Stáltækja hf. sagði,
aö Casio væri stærsta fyrirtæki í
heiminum í framleiðslu vasa-
reiknivéla, eða vasatölva eins og
svo margir kalla þær. Hann sagði,
að árið 1977 hefði fyrirtækið selt
rúmar 25 milljónir vasatölva í
Evrópu einni, fyrir u.þ.b. 670,9
milljónir Bandaríkjadala.
Stáltæki verslar eingöngu með
vörur frá Japan og það eingöngu
frá Casio. Sagði Mikael, að fyrir-
tæki hans hefði á boðstólum 15
tegundir af vasareiknivélum og 20
gerðir af tölvuúrum. Casio fram-
leiðir sína vöru eingöngu í Japan,
en dreifing fer fram á ýmsum
stöðum. Stáltæki hf. fær pantanir
Japanir eru mjög framarlega í
framleiðslu Ijósmyndavéla í heim-
inum, en vegna þess hve mikill
fjöldi er framleiddur hafa japanskir
framleiðendur yfirleitt getað boöið
lægra verð en framleiðendur í
öðrum löndum. Merki eins og
Konica, Olympus, Canon og fleiri
eru venjulega frá sitt hvorum
framleiðandanum, en ekki sam-
steypum, sem framleiða Ijós-
myndavélar undir ýmsum heitum.
sínar gegnum aðalskrifstofu í
London, en varan er flutt frá Japan
með skipum til London, og þaðan
með flugi til íslands.
Casio fyrirtækið hefur komið
fyrst með ýmsar nýjungar á sviði
vasareiknivélaframleiðslu, að
sögn Mikaels. Nú er t.d. á mark-
aðnum vasareiknivélar sem eru
auk þess með skeiðklukku og
vekjaraklukku, auk venjulegrar
klukku og þar að auki með vind-
lingakveikjara, sem er nýjung.
Einnig er unnt að kveikja á sjón-
varpi og útvarpi með þessum
vasareiknivélum.
Þess má einnig geta að þynnsta
vasareiknivél, sem Casio framleið-
ir er aðeins 1,9 mm á þykkt. Mikael
sagði, að Casio væri eina fyrir-
tækið, sem framleiddi vasareikni-
vélar með almennum brotum,
brotabrotum og tugabrotum. Til
eru vasareiknivélar allt frá einföld-
ustu gerðum og upp í háþróaðar
með vísindalegum útreikningum.
Flestar vasareiknivélarnar eru
með venjulegri klukku auk skeið-
klukku og vekjaraklukku.
-----------------\
Hver
selur
hvað?
Þegar þú þarft að afla þér
upplýsinga um hver hafi umboð
fyrir ákveðna vöru eða selji hana
þá er svarið að finna í ÍSLENSK
FYRIRTÆKI sem birtir skrá yfir
umboðsmenn vöruflokka og
þjónustu sem íslensk fyrirtæki
bjóða upp á.
Sláið upp í
ÍSLENSK FYRIRTÆKI
og finnið svarið.
ÍSLENSK
FYRIRTÆKI
Ármúla 18.
Símar 82300 og 82302
v______________y
Vasareiknivélar
með vindlingakveikjara
59