Frjáls verslun - 01.08.1979, Side 33
1950", segir Glennford Myers frá
IBM Systems Research Institute,
New York, í viðtali við Financial
Times fyrir skömmu. Og hann
bætti því við, að það sem meira
væri, — tölvunotendur eins og
stærstu framleiðslufyrirtækin
væru þegar búin að verja svo
miklum fjármunum í kauþ á tölvu-
búnaði að þau gerðu engar kröfur
um að fullkomnari tæki kæmu á
markaðinn í náinni framtíð.
Myers segir að þróunin hafi öllu
fremur verið fólgin í tækniframför-
um sem snerta framleiðslu á tölv-
um og tölvubúnaði t.d. alls konar
jaðartækjum auk þess sem fram-
þoð staðlaðra forrita hafi aukizt
jafnt og þétt. Þetta sé raunveru-
lega sú þróun sem almenningur
hefur verið að fylgjast með, fram-
leiðendur og almenningur hefur
stööugt verið að uþþgötva ný og
ný verkefni fyrir tölvur, án þess að
tölvurnar séu fullkomnari að öðru
leyti en því að vera þetur smíðaðar.
Blaðamaður Financial Times
kemst að þeirri niðurstöðu, að
tölvur muni halda áfram að verða
fyrirferðarminni og ódýrari og að
tæknilegar endurbætur, ef nokkr-
ar séu, verði duldar fyrir notendum
fremur en öfugt. Sþurningin á
tæknisviðinu sé því: Hve fyrirferð-
arlitlar geta tölvur orðið t.d. eftir
áratug?
Markaðshlutdeild jaðartækja
Aukin fjölbreytni í notkun tölva
hefur skaþað markað fyrir marg-
vísleg tæki, sem tengja má mið-'
tölvu eða vinnsluverki í því skyni
að sníða tölvukerfið að þörfum og
kröfum notandans. Yfirleitt eru
þessi tæki kölluð jaðartæki
(peripherals). Það virðist aftur-
ámóti vefjast fyrir mörgum hvar
mörkin eru dregin á milli kjarna-
búnaðar og jaðartækja. í algeng-
ustu tölvukerfum, t.d. bókhalds-
tölvum eins og notaðar eru hér-
lendis, kallast seguldiskar eöa
geymslubönd t.d. ekki jaðartæki
heldur telst hluti kjarnabúnaðar-
ins.
í þessu sambandi má geta þess
að núorðið eru jaðartækin talsvert
dýrari en sjálfur kjarnabúnaður-
inn, eða réttara sagt, verðmæti
jaðartækjanna á markaðinum
skaþa tölvuseljendum mun meiri
tekjur en sala á kjarnabúnaði.
Annað atriði sem nefna mætti er
að nú eru jaðartæki, í auknu mæli,
með ákveðna vinnslugetu upp að
vissu marki þannig að þau geta
unnið samhliða kjarnatölvu og í
sumum tilvikum sem sjálfstæðar
vinnslutölvur (t.d. einstakar gerðir
tölvuskerma).
Breska ráðgjafarfyrirtækið
Mackintosh Consultants hefur
reiknað út að heildarmarkaður
fyrir tölvubúnað (hardware) í 4
markaðslöndum Evrópu, Frakk-
landi, Bretlandi, Ítalíu og V-Þýzka-
landi, muni nema um 5 milljörðum
dollara á árinu 1979. Þar af muni
jaðartæki skapa um 70% sölu-
tekna eða 3,7 milljarða dollara
og þar af verði flutt inn frá Banda-
ríkjunum jaðartæki fyrir um 600
milljónir dollara.
„Minicomputer" og „Micro-
computer"
Þessi heiti mætti þýða sem
smátölvur annars vegar og örtölv-
ur hins vegar. Hvorugt á þó nokk-
uð skylt með vasatölvum. Smá-
tölvur, (minicomþuters) eru þær
kallaðar, sem á undanförnum ár-
um hafa verið keyptar af íslerizkum
FERÐAMENN!
Verið velkomin til
ísafjarðar
GÓÐ SKÍÐAAÐSTAÐA
SUNDHÖLL
Samgöngumiðstöð
Vestfjarða
33