Frjáls verslun - 01.08.1979, Side 47
Um þessar mundir eru liðin 60 ár frá því að fyrirtækið Kristján Siggeirsson hf. tók til starfa. A<
þessu tilefni hefur verið komið upp sýningu á gömlum húsgögnum í verzlun fyrirtækisins á
Laugavegi 13, en framan af stundaði fyrirtækið innflutning á erlendum húsgögnum og hóf
síðan eigin framleiðslu, sem með árunum hefur vaxið að mun. Á þessum merku tímamótum í
sögu fyrirtækisins ræddi Frjáls verzlun við Hjalta Geir Kristjánsson, framkvæmdastjóra, son
stofnandans, Kristjáns Siggeirssonar. Hjalti Geir er 53 ára gamall. Hann útskrifaðist úr
Verzlunarskóla Islands árið 1944 og hóf þá nám í húsgagnasmíði. Sveinsprófi í þeirri iðn lauk'
hann 1948 eftir að hafa smíðað skrifborð sem sveinsstykki. Þá lá leiðin til Sviss, þar sem
Hjalti Geir lagði stund á húsgagnateiknun til ársins 1951. Síðar var hann við framhaldsnám í
Svíþjóð og Bandaríkjunum, en hóf samfelld störf hjá Kristjáni Siggeirssyni hf. árið 1952.
Hjalti Geir hefur teiknað mörg þeirra húsgagna, sem á boðstólum hafa verið hjá Kristjáni
Siggeirssyni, m.a. stólinn á forsíðumynd þessa blaðs. Hjalti Geir tekur virkan þátt í félags-
störfum iðnrekenda og er nú formaður Verzlunarráðs Islands.
vissu árabili rekin málaravinnustofa, þar sem hús-
gögn voru máluð.
— Hverjir urðu síðan merkustu áfangar í sögu
fyrirtækisins, er fram liðu stundir?
— Hjalti Geir: Ef litið er til ba.ka til fyrstu áratuga
starfseminnar sést, að Kristján kaupir húseignina að
Laugavegi 13 árið 1922 og byggir steinsteypt hús þar
við árið 1928. Þróunin hefur orðið sú, að á hverjum
áratug eftir það og fram á þennan dag hafa meiri
háttar framkvæmdir og endurbætur átt sér stað. Árið
1963 var brotið blað í húsgagnaframleiðslu fyrirtæk-
isins, þegar fengnir voru sænskir tæknimenn til að
gera skipulag að nýrri verksmiðju, sem hafinn var
rekstur í árið eftir. Stökkið var allstórt, við fluttum af
Nýtt verkstæði í Lágmúla 7 olli þátta-
skilum árlð 1963.
47