Frjáls verslun - 01.08.1979, Page 55
Fólksfjölgunin víöa margfalt
landsmeöallag
„Það verður ekki annað sagt en að sjaldan hafi hjólin snúizt jafn hratt
hér vestra og einmitt nú“, sagði Jóhann T. Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Fjórðungssambands Vestfjarða, er FV ræddi við hann um
byggðaþróunina á Vestfjörðum.
Á sama tíma og höfuðborgarsvæðið virðist missa fólk, hefur orðið
veruleg fjölgun íbúa á þéttbýlissvæðum Vestfjarða. Árið 1978
fjölgaði um 1,08% á Vestfjörðum meðan fjölgun þjóðarinnar var 0,86%.
Á Flateyri fjölgaði um rúmlega sjö af hundraði, Suðureyri 5,2, Hólmavík
4,9 og jafnvel á Bíldudal, sem um árabil var illa á sig kominn atvinnulega
séð, fjölgaði um nærri fimm af hundraði á einu ári. Á Isafirði var fólks-
fjölgunin 1,5% á árinu.
Jóhann kvað einsýnt að augu margra beindust að Vestfjörðum og
fleiri vildu reyna þar búsetu en hægt væri að koma við. Húsnæðis-
skortur er mikill. Og enda þótt gífurlega mikið sé byggt, mettar það
engan veginn eftirspurnina eftir húsnæði.
Þá steðja þeir erfiðleikar að húsbyggjendum að erfitt er að fá iðnað-
armenn og verktaka til byggingarvinnu vestra. Að vísu eru allmargir
slíkir að störfum, flestir frá höfuðborgarsvæðinu og nærliggjandi stöð-
um, en þó þyrfti enn fleiri vinnufúsar hendur, ef gera ætti það sem þarf.
Vestfirsku kauptúnin og kaupstaðirnir hafa síðustu árin breytt mjög
um svip. Það er ekki langt síðan að þar var allt á kafi í ryki og skít. Eftir
að farið var að rykbinda götur og ganga endanlega frá þeim með til-
heyrandi gangstígum, er útlitið nokkuð annað. Og þetta virðist hafa
hvatt íbúana til að ganga frá lóðum sínum.
Jóhann gat þess að íbúaaukningin þýddi jafnframt að meira þyrfti að
berast af landbúnaðarafurðum til þéttbýlisstaðanna. En það hefur ein-
mitt ekki gerzt. Mjólkurskorturinn á svæðinu hefur oft verið mjög
bagalegur. Hefur orðið að bæta upp skortinn, einkum á veturna með
mjólkurfiutningum í lofti frá Reykjavík, Akureyri og víðar að.
55