Frjáls verslun - 01.08.1979, Blaðsíða 59
„Við erum að vona að bráðlega
verði hægt að auglýsa eftir fólki til
starfa hér, og að við getum þá
hnýtt því aftan í að húsnæði sé í
boði“, sagði Hálfdán Kristjáns-
son, sveitarstjóri á Súðavík. „Við
höfum verið að rétta heldur betur
úr kútnum hér síðustu árin eftir að
fátt eitt hafði gerzt langtímum
saman.“
Á Súðavík var á tímabili talið að
fimmtungur íbúanna eða 50—60
manns, byggju í heilsuspillandi
húsnæði. í dag búa allir í nýtízku-
legum húsum, aðallega einbýlis-
húsum. Beðið er eftir húsnæðis-
málastjórn með að byggja sex
íbúða blokk.
Punkturinn yfir i-ið, gatnagerð-
in, er næst á dagskrá hjá þeim
Súðvíkingum. Er nú unnið að
undirbúningi, leggja holræsi og
undirbúa undir slitlag.
Ný heilsugæzlustöð
Þá má nefna það að nýlega tók
til starfa heilsugæzlustöð í Súða-
vík. Framkvæmd á vegum ríkisins,
sem tekið hefur 7 ár. ,,Það þætti
illa að staðið, ef sveitarfélagið væri
svo seint í svifum", sagði Hálfdán
Kristjánsson. Hann kvað menn
hafa gagnrýnt það að inn í stööina
komast menn ekki í hjólastólum.
Þegar stöðin var teiknuð var ekki
byrjað að taka slíkt með í reikn-
inginn.
Hafnargerðin sagði Hálfdán að
væri verkefni framtíðarinnar. Nú
væri helzt unnið að því að setja
innan í viðlegukantinn. Þar legst
aflaskipið Bessi að og veitir íbú-
unum og aðkomufólki gífurlega
atvinnu. ,,Það er sama hvar þeir
bleyta i trollinu, þeir fylla stööugt,
jafnvel á 2—3 dögum." Yngra
fólkið bjargaði miklu yfir sumar-
tímann, en útlendingar væru ekki
við vinnu í Súðavík. Þeir væru
taldir dýrara vinnuafl, þar eð kosta
þarf flugfarið fyrir þá. Hinsvegar
væri það reynsla margra að þeir
væru gott vinnuafl, samvizkusamir
og vinnusamir, allavega fyrst í
staö, meðan þeir eru ekki búnir að
átta sig á ríkjandi kerfi sumra í hópi
landverkafólksins.
Slæmt ástand vega
Súðvíkingar eru hvað afskekkt-
astir af þéttbýlisfólki á Vestfjörð-
um. Til ísafjarðar er meira en 20
kílómetra tröllavegur, sem þó hef-
ur víða verið breikkaður og lag-
færður. Lagfæringar vegagerðar-
innar hafa reynzt haldlitlar. Síðast
hvarf ofaníburðurinn á mánuði.
,,Við erum heppnir að lokast sára-
sjaldan inni", sagði Hálfdán.
„Leiðin um Steingrimsfjarðarheiði
þarf að opnast, en við sjáum ekki
að það verði fyrr en í fyrsta lagi
1985, enda þótt það verkefni sé
talið þriðja á forgangslistanum.
Vegasjóður er víst tómur að
venju", sagði hann.
Þá sagði Hálfdán að verið væri
að opna verbúðir á Langeyri,
gamalt hús var þar gert upp í
þessu skyni. Þar verður hægt að
hýsa 30 manns og nokkra til við-
bótar í öðru húsnæði sem verið er
að innrétta. Aðkomufólkið ætti að
létta talsvert undir með heima-
mönnum. Vinnuálagið var orðið
slíkt að verkalýðsfélagið bannaði
alla sunnudagsvinnu, og raddir
voru uppi um að togarinn sigldi
utan annan hvern túr.
Sparisjóður Súðavíkur
Mikil vinna þýðir mikla peninga.
Og fyrir fimm árum var fyrsta pen-
ingastofnunin opnuð í Súðavík,
Sparisjóður Súðavíkur. Þar hefur
orðið hvað mest innlánsaukning á
öllu landinu. Árið 1977 nam hún
86%, 1978varð hún 125% og íárer
hún orðin 100% að sögn Hálfdán-
ar, sem sjálfur er sparisjóðsstjóri.
Kvaðst hann búast við að innláns-
aukning ársins yrði allt að 150%.
59