Frjáls verslun - 01.08.1979, Blaðsíða 67
Skrínan
.
Skrínan var opnuð í nóv-
ember, 1975, og fór það
varla fram hjá neinum sem
horfði á sjónvarp, á þeim
tíma, því að staðurinn aug-
lýsti sig upp með skemmti-
legum rímnasöng, í sjón-
varpsauglýsingum.
Skrínan stendur við
Skólavörðustíginn, á horni
Bergstaðastrætis, og þar
starfa 12—15 manns.
,,Við erum með allskonar
mat, bæði grillrétti og annan
,,fínni“, ef svo má segja''
sagði Boðvar Pálsson, yfir-
matsveinn Skrínunnar. ,,Þá
erum við einnig meö rétt
dagsins og verðið á honum
er svona 3—4000 krónur."
Aðspurður um sérstöðu
staðarins svaraði Böðvar því
til aö erfitt væri að segja til
um það nema helst að þeir
kappkostuðu aö hafa
snögga afgreiðslu.
,,Og þó, það má kannski
nefna laxinn sem við höfum
á boðstólum nú í sumar."
Á Skrínunni eru sæti fyrir
90 manns.
,,Við opnuðum að sjálf-
sögðu á 17. júní í sumar".
Þetta sagði Jón Helgi Jó-
hannesson eigandi mat-
staðarins Borgarans við
Lækjartorg. Margir kannast
við hina frægu McDonalds—
staði úti í löndum og má
segja að Borgarinn sé með
svipuðu sniði. Þarna fást
þrjár geröir hamborgara og
franskar kartöflur, að sjálf-
sögðu, en einnig gos, kaffi
og kakó. Jón sagði að stefnt
væri að því að selja einnig
mjólkurhristing (shake) og
ís í framtíðinni.
,,Aðalsmerki okkar er að
sjálfsögðu þessi sérhæfing
okkar sem fram kemur í því,
sem við höfum á boðstólum.
Þá afgreiðum við mikið út,
þ.e.a.s. við pökkum matnum
þannig inn að menn geta
tekið hann með sér, t.d. út í
bíl eða á vinnustaði. Þar fyrir
utan kappkostum við að
hafa hraða þjónustu. Svona
staður á tvímælalaust rétt á
sér; það er enginn vafi á
því."
Á Borgaranum starfa 8
manns og á stáðnum eru
háborð og sæti við þau fyrir
16 manns.
,,Það háir okkur nokkuð
að staðurinn er ekki full frá
genginn, þannig að hann er
ekki kominn í endanlegt
form ennþá. En þetta geng-
ur annars bara vel."
S*- ^000="-.
Borgarinn
67