Frjáls verslun - 01.08.1979, Blaðsíða 72
Veitingabúð Hótel Loft-
leiða, en veitingabúð mun
vera hið íslenska heiti yfir
,,Cafeteríu“, var opnuð í
núverandi mynd þann 1.
maí, 1970. Veitingabúðin er
aðallega hugsuð fyrir hótel-
gesti en samt er þó nokkuð
um að ,,fólk úti í bæ" komi
og fái sér í svanginn.
Jón Rafn Högnason
fræddi okkur ofurlítið um
staóinn og sem svar við því
hvað staðurinn byði upp á í
mat, sagði hann: ,,Það er í
fyrsta lagi morgunverður en
veitingabúðin opnar kl.
04.30 á sumrum en kl. 05.00
á vetrum. Hann saman
stendur af ýmiskonar holl-
um og góðum mat. Síðan
eru grillréttir og einnig dýr-
ari steikur. Fiskréttir ýmis-
konar eru og fáanlegir, t.d.
silungur og djúpsteiktur
skötuselur. Við erum með
rétti dagsins; alltaf einn
kjötrétt og einn fiskrétt,
bæði í hádeginu og á kvöld-
in. En annars leggjum við
mesta áherslu á hádegis-
verðinn."
Eins og við tókum fram
áðan er staðurinn að mestu
ætlaður hótelgestum og því
er mikið um útlendinga en
einnig er töluvert um inn-
fædda.
Salurinn tekur um 100
manns í sæti.
72