Frjáls verslun - 01.08.1979, Síða 75
Hótel
Borg
Nb aOQC*.. —
Hótel Borg er einn viröu-
legasti matstaður í höfuö-
borginni. Borgin var opnuð
áriö 1930 í tilefni af Alþing-
ishátíöinni og allt frá þeim
tíma hefur hún veriö einn
vinsælasti mat- og
skemmtistaðurinn í Reykja-
vík.
Aðalsmerki Borgarinnar í
sambandi viö mat er hiö
svokallaða hraðborð sem er
uppi í hádeginu. Hraöboröiö
samanstendur af ótal rétt-
um; síldarréttum, salötum,
skinku, ávöxtum, brauði,
ostabakka, „deserum", og
fleiru og fleiru. Þá er alltaf
heitur kjötréttur. í gamla
daga gengu svona mini-
köld borö undir nafninu
cabaret-borö og munu
margir af eldri kynslóöunum
kannast viö það. Veröiö fyrir
máltíðina er 4900 krónur og
fyrir þann pening má boröa
að vild.
Fyrir utan hraöboröiö
liggja frammi matseölar
með mörgum sérréttum,
bæöi í hádeginu og eins á
kvöldin, og einnig er vín fá-
anlegt meö.
,,Það er mikiö um aö
mönnum sé boðið í mat
hingaö, t.d. mikiö um kaup-
sýslumenn," sagöi Skúli Jó-
hannesson, framreiðslu-
maöur. ,,Þá er kaffiö okkar
oröiö mjög vinsælt af mörg-
um. Einnig má geta þess aö
um helgar er mjög mikil aö-
sókn, bæöi í mat og á ball."
Sigurður Gíslason, for-
stjóri, kvaö staðsetninguna
vera mesta sérstööuna:
,,Hún getur nú ekki verið
betri, er þaö?"
Matsalurinn á Borginni
tekur 150 manns'en mögu-
legt er aö taka viö allt aö 350
manna hópum.
Nú starfa 35 manns í mat-
sal og eldhúsi en í allt munu
vinna 60 manns á Hótel
Borg.
„Þetta gengur svona af
gömlum vana" sagði Sig-
urður aö lokum er viö innt-
um hann eftir því hvernig
gengi.
75