Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1980, Blaðsíða 43

Frjáls verslun - 01.01.1980, Blaðsíða 43
SEÐLABANKI ÍSLANDS FÉLAG (SLENSKRA STÓRKAUPMANNA Hagfræðideild Hlutfallstölur úr efnahagsyfirlitum heildverslana Nóvember 1979 1973 1974 1975 1976 1977 1978 Eignir 100,00 100,00 100,00 100,00 100,00 100,00 Sjóður og bankainnstæður 4,19 5,30 5,44 5,07 4,56 5,10 Geymslufé 1,62 3,15 2,19 1,37 1,79 1,73 Vöruvíxlar 11,71 7,47 9,70 7,76 7,65 6,23 Inneignir hjá viðskiptamönnum 33,61 29,31 31,30 23,84 26,04 26,92 Vörubirgðir 22,60 35,12 30,85 28,01 27,03 30,15 Fastafjármunir 21,66 16,55 17,32 31,30 30,89 24,24 Aðrar eignir 4,61 3,10 3,20 2,65 2,04 5,63 Skuldir og eigið fé 100,00 100,00 100,00 100,00 100,00 100,00 Yfirdráttarskuldir 6,18 5,18 4,46 2,78 2,86 1,92 Víxilskuldir 25,85 28,58 28,47 21,76 21,19 20,57 Erlendar 10,97 16,24 16,02 12,38 11,20 10,88 Innlendar 14,88 12,34 12,45 9,38 9,99 9,69 Aðrar skammtímaskuldir 20,00 28,42 26,51 26,66 30,55 37,77 Erlendar 4,68 11,07 10,03 8,74 13,53 14,28 Innlendar 15,32 17,35 16,48 17,92 17,02 23,49 Veðskuldir og aðrar langvinnar skuldir 7,59 6,15 9,56 7,70 6,11 5,01 Eigið fé 40,39 31,66 31,00 41,10 39,29 34,73 Tölur fyrir árin 1973—1976 eru hagfræðideildar Seðlabanka íslands. byggðar á fyrri könnunum F.I.S. og Þaö var árið 1973, að Félag ísl. stórkaupmanna gerði fyrst könn- un á afkomu heildverzlunarinnar vegna ráðstefnu um fjárhagsstöðu hennar. Þetta var alhliða könnun, bæði á fjárhagshliðinni og búnaði verzlunarfyrirtækjanna. Könnunin var því allumfangsmikil. Óneitan- lega var það nokkur hvati að henni, að verðlagsyfirvöld höfðu ítrekað núið innflutningsverzlun- inni því um nasir, að ekki lægju fyrir nógu staðgóðar heimildir um afkomu hennar, þegar álagning- arákvæði væru til meðferðar. Skýrslur þjóðhagsstofnunar um afkomu verzlunar hafa yfirleitt verið svo seint á ferðinni aö þær hafa ekki komið að notum í þessu sambandi og í þeim er heldur ekki fjallað svo sérstaklega um inn- flutningsverzlunina. Sameiginlegur bókhalds- lykill Upphaflega náði könnunin til 50—60 fyrirtækja og þurfti nokkuð að ýta á eftir svörunum í fyrstu. Spurningar voru almenns eðlis, lutu m.a. að þörf fyrir hagræðingu og breytingar á bókhaldi og tækjakosti. Mismunur í uppsetn- ingu bókhalds var þá meiri en nú og þróunin hefur verið þessari viðleitni mjög í hag síðustu árin. Vilja fyrirtækjanna til þátttöku í könnuninni skorti ekki, en hins vegar var oft erfitt að túlka tölur, því að þær voru ekki jafn sam- bærilegar og eftir að þær tóku að færast í átt til núverandi uppsetn- ingar. Félagið beitti sér fyrir því haustið 1977 að gerður var sam- eiginlegur bókhaldslykill, hann- aður fyrir allar algengustu tölvur, sem i notkun eru hérlendis. Til dæmis eiga 10 fyrirtæki aðild að sömu tölvu í Frum h.f. í Sundaborg og geta fært upplýsingar, sem óskað er eftir í könnunum af þessu tagi, beint inn á viðkomandi eyðu- blöð. í könnunum síðustu ára hefur einkanlega verið leitað upplýsinga um efnahags- og rekstrarreikning en síðan 1975 hefur könnunin verið gerð í samvinnu við hagdeild Seðlabanka íslands. Formið á könnuninni hefur smám saman tekið breytingum og orðið full- komnara. Nú er sent efnahags- og rekstraryfirlit til fyrirtækjanna til útfyllingar og ýmsar hlutfallstölur síðan unnar upp úr upplýsing- unum, sem fram koma. Þegar litið er á hlutfallstölur úr rekstraryfirliti heildverzlana á ára- bilinu 1973—1978 kemur í Ijós, að afkoma þeirra verður sífellt lakari frá árinu 1975 og er nettóágóði orðinn að meðaltali 1,59% árið 1978 en hafði verið 2,99% að meðaltali árið 1975. Kennitölur úr reikningum fyrir- tækjanna árin 1972—1978 bera með sér, aö veltufjárhlutfall hefur farið verulega lækkandi. Það var aðeins 1,164 árið 1978 og sýnir það glögglega hvað rekstrarstaða fyrirtækjanna er erfið. Árið 1973 var þetta hlutfall t.d. 1,417. Hlutfall kvikra veltufjármuna fer einnig mjög verulega lækkandi og er komið í 0,664 árið 1978 en var næstum 1 árið 1973. Það ár var veltuhraði birgða 11,29 en var kominn í 6,34 árið 1978. Inn- heimtutími er svipaður fyrir allt tímabilið, yfirleitt um 60 dagar. Hagnaður miðað við sölu er 1,7 árið 1978 en var 3,2 1973 og arö- semi eigin fjár er um það bil helm- ingi minni 1978en hún var 1973 og 1975. I því sambandi verður þó að hafa í huga breytingar á fast- eignamati og fleira, sem áhrif hef- ur á þessa mynd. En sé litið á þessi hlutföll um afkomu fyrirtækjanna í heild eru þau á einn veg; í þá átt að afkoman hefur stöðugt verið að versna síðustu árin. 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.