Frjáls verslun - 01.01.1980, Side 69
Helgi Þorsteinsson ásamt tveim starfstúikna Bókhaldsskrifstofunnar. Þar voru
mlklar annir, og enn meiri framundan, framtalsaðstoð og áramótauppgjör.
Nú starfa við fyrirtækið þeir Hilmar og Helgi Þorsteinsson,
sem lengi var skólastjóri á Dalvík, en Hilmar er Samvinnu-
skólamaður. Jóhann Antonsson er nú hættur við fyrirtækið, en
hann er viðskiptafræðingur að mennt.
Segja má að þjónustugrein eins og þessi sé nokkuð ný í
sjávarplássunum úti á landi, en áreiðanlega er mikil þörf
fyrir slíka þjónustu, enda sagði Hilmar að viðskiptavinir þeirra í
Bókhaldsskrifstofunni h.f. kvörtuðu ekki, síður en svo. Sann-
leikurinn er eflaust sá að margir þeir, sem reka minni atvinnu-
rekstur, vilja gjarnan snúa sér af alefli að sinni iðn, þjónustu
eða öðrum atvinnurekstri í stað þess að verja tíma sínum í
pappíraflóðinu. Þá getur þjónusta eins og þessi komið í góðar
þarfir, og í raun flyzt fjármálareksturinn á hendur bókhalds-
skrifstofunnar, sem getur á hverjum tíma sagt eigendunum allt
um stöðu fyrirtækisins, auk þess sem hún sér um launa-
greiðslur, greiðslur á reikningum, innheimtur og bankaviðskiþti
svo eitthvað sé nefnt.
,,Við vitum að margir smærri aðilar hafa farið illa út úr skött-
um að ástæðulausu vegna ónógrar bókhaldsþekkingar, og oft
vegna þess að bókhaldið var ekki í lagi“, sagði Hilmar. ,,Við
teljum að þessi verkaskipting eigi að gefa góða raun fyrir báða
aðila."
Hjá skrifstofunni starfa nú fimm manns, auk þeirra Hilmars
og Helga starfa þar þrjár stúlkur, tvær hálfan daginn. í athugun
er nú hjá þeim félögum að koma á tölvuvinnslu við bókhaldið.
AKUREYRI
ER BÆR FRAMFARANNA
ÞAR BÍÐA TÆKIFÆRIN ÞEIRRA, SEM KUNNA AÐ NOTA
ÞAU KOMIЗSJÁIЗKYNNIST
69