Frjáls verslun - 01.01.1980, Side 67
Hellu, þar sem hann starfaði í 10
ár.
Á tali nokkurra Dalvíkinga mátti
heyra að þeir eru ánægðir með
sþarisjóðinn sinn, Sþarisjóð
Svarfdæla, en líta óhýru auga til
ráðagerða stóru bankanna „að
sunnan" eins og þeirsögðu sumir,
um að setja á fót útibú á staðnum.
Tvær peningastofnanir eru yfriö
nóg, sagði einn þeirra og átti þá
viö að á staðnum rekur KEA Inn-
lánsdeild eins og tíðkast mun hjá
kaupfélögunum.
Húsakynni sparisjóðsins eru
einstaklega smekkleg, þau eru í
austurhelmingi jarðhæðar ráð-
hússins nýja, alls á 4. hundrað
fermetrar en á annarri hæð er ver-
ið að innrétta 100 fermetra til við-
bótar fyrir sparisjóðinn og er ætl-
unin að þar verði bókhald spari-
sjóðsins.
Gunnar segir okkur að spari-
sjóöurinn sé aldeilis ekki nýr af
nálinni. Hann verður senn aldar-
gamall, stofnaður 1884 á öðrum
degi þess árs. „Sjóðurinn var
stofnaður á landnámsjörðinni
Grund í Svarfaðardal þar sem
landnámsmaðurinn Þorsteinn
Svörfuður bjó". Þannig er Spari-
sjóður Svarfdæla stofnaður ári
áður en Landsbanki íslands.
Allt fram undir þetta hefur spari-
sjóðurinn verið rekinn af einum
starfsmanni eða svo, og allt til
1959 á heimilum sparisjóðsstjóra í
það og það skiptið. En 1959 var
flutt frá Brimnesi inn til Dalvíkur
með sjóðinn og fékk hann inni í 15
fermetra kompu í KEA-verzluninni
á staðnum. í dag er KEA í raun eini
keppinautur Sparisjóðsins á
staðnum. Það var svo ekki fyrr en
um mitt áíðasta sumar að sjóður-
inn flutti í hin glæsilegu húsakynni,
sem viðskiptavinir ekki síður en
starfsfólk kunna vel að meta.
Dalvík er á mikilli uppleið og
segja má að beðið sé eftir hverju
skoti sem losnar. Það er útgerðin
sem allt byggist á. Þanig byggist
starfsemi Sparisjóðs Svarfdæla
mjög á fiskinum og öllu sem hon-
um viðkemur, en einnig þjónustu
við nærsveitirnar. Frá Dalvík eru
nú gerðir út tveir togarar og
nokkrir netabátar og hafa gert það
mjög gott um árabil.
Innlán til sparisjóðsins árið 1978
námu 625 milljónum króna, útlánin
332 milljónum. Á síðasta ári voru
innlánin alls 950 milljónir, útlánin
560 milljónir kr.
„Við reynum eftir megni að veita
atvinnuvegunum úrlausn, en erum
stöðugt minnugir hlutverks spari-
sjóðanna, að veita fé til nýbygg-
inga á okkar svæði. Þar er um að
rælða fast lán að upphæð 2 mill-
jónir", sagði Gunnar Hjartarson
að lokum.
Þess skal að lokum getið að
sparisjóðurinn lætur allar færslur
fara gegnum Reiknistofnun bank-
anna í Kópavogi einu sinni á dag
með beinu símasambandi.
„Ég er maður frjálsa
framtaksins og vildi fá
að ráða mér sjálfur”
— segir Magnús Gamalíelsson, út-
gerðarmaður í meira en hálfa öld. Hann
stofnaði eigin fyrirtæki, þegar verk-
stjóra hans var sagt upp störfum.
„Þetta gekk mjög eðlilega á síðasta ári“, sagði Magnús
Gamalíelsson, útgerðarmaðurinn gamalkunni á Ölafsfiröi,
þegar FV hafði tal af honum. „Annars eru allir peningar reyttir
af okkur, þannig að við eigum sjaldnast nokkuð eftir til að sinna
eðlilegu viðhaldi fyrirtækisins". Hér höfðaði hann til sívaxandi
innheimtu hins opinbera hjá atvinnurekstrinum.
Magnús er rúmlega áttræður og hefur nú starfað við útgerð í
50—60 ár, kom til Ólafsfjarðar 1916 og byrjaði að gera út lítinn
vélbát 1927, Barðann, 7 tonna bát, sem hann keypti af þrotabúi.
í dag er fyrirtæki hans stórt og gott frystihús, þriðjungseign í
togaranum Ólafi Bekk og nýja og glæsilega skipiö Sigurbjörg,
sem Magnús og synir hans eiga. Synir hans tveir, Svavar og
Sigurgeir, hafa að mestu létt byrðunum af föður sínum og sjá
um stjórn fyrirtækisins.
„Sigurbjörgin er í alla staði vel lukkað skip", sagði Magnús,
„en það er mikiö af peningum í henni. Hún hefur aflaö vel fram
að þessu, en þetta er svosem ekki langur tími frá því hún fór
fyrst til veiða, eitthvað hálft ár eða rétt rúmlega það".
Magnús kveðst vera maður hins frjálsa framtaks. Þess vegna
kveðst hann hafa stofnað sína eigin útgerð og fiskverkun á
sínum tíma. Hann stofnaði Hraðfrystihús Ólafsfjarðar og á hlut í
því.
„Ég fór til Reykjavíkur, til að annast ýmislegt, en á meðan var
verkstjóranum mínum sagt upp. Ég var þá ekkert að standa í
þessu, vildi bara ráða mér sjálfur, og stofnaði þetta."
Á síðasta ári var framleiðslan frá húsi Magnúsar og sona
hans eitthvað rúmlega 1200 tonn af frystum fiski, auk talsverðs
magns af skreið.
67