Frjáls verslun - 01.01.1980, Page 68
Bókhaldsskrifstofan á Dalvík:
Þeir sinna pappírnum, en
það er ekki öllum lagið...
— hafa 34 fyrirtæki og einstaklinga
með atvinnurekstur í viðskiptum sem
sinna sínu sérsviði þá betur en ella og
sleppa við pappírsflóð
Eitt fyrirtækjanna, sem aðsetur hefur í hinu nýja ráðhúsi
Dalvíkur er Bókhaldsskrifstofan h.f. Fyrirtækið er rétt um það
bil áratugs gamalt, stofnað af þeim Hilmari Daníelssyni og Jó-
hanni Antonssyni.
„Þróunin var hæg hjá okkur í fyrstu", segir Hilmar Daníels-
son. ,,Við settum upp skrifstofu við Hafnarbrautina og gekk
svona upp og niður í fyrstu. Núna erum við víst með ein 34
fyrirtæki og einstaklinga, sem hafa einhvern atvinnurekstur.
Obbinn af verkefnunum koma frá Dalvík og af Árskógsströnd-
inni, en einnig erum við með viðskiptamenn á Hofsósi og
Húsavík."
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA
Húsavík, sími 96-41444
Búsáhöld Byggingarvörur Erum einnig með söluskála
Matvörur Fóðurvörur sem opinn er alla vikuna frá 9—11.30.
Skó- og fatadeild Kyninið ykkur okkar fjölbreytta vöruval
og lítið inn.
68