Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1980, Qupperneq 74

Frjáls verslun - 01.01.1980, Qupperneq 74
til umrædu Hvernig andæfum vid? — eftir Markús Örn Antonsson Rússneski björninn hefur sýnt klærnar enn einu sinni. Þó Afghanistan sé á öðru menningarsvæði og þyki óvenjuframandi í okkar heimshluta þrátt fyrir alla samgöngutækni samtímans, hefur fólk hér norður á íslandi skynjað betur en oftast áður vegna örlaga Afghanistans þá stöðugu ógn, sem umheiminum stafar af markvissri útþenslu Sovétríkjanna. Jafnvel þeir, sem haldnir hafa verið mestri pólitískri blindu á stöðu alþjóða- mála hafa loks í ljósi síðustu atburða skynjað hver hætta er á ferðum. Óskammfeilni og yfirgangur sovézkra vald- hafa á alþjóðavettvangi hefur aldrei afhjúpazt svo rækilega sem nú eftir fagurgala og skála- ræður um slökun í samskiptum austurs og vest- urs, sem staðið hafa látlaust í meir en áratug. í lengstu lög vildu menn trúa því að þíðan í sam- skiptum Sovétríkjanna og Vesturlanda táknaði þáttaskil og að bein innlimun sjálfstæðra ríkja í Sovétveldið, eins og átti sér stað eftir heims- styrjöldina síðari, væri Iiðin tíð, sem endurtæki sig alls ekki. En ruddaskapur Sovétleiðtoga í viðskiptum við nágranna sína sem og eigin þegna er enn stalínskur í eðli sínu, heimsdrottn- unarstefnan nákvæmlega sú sama og áður þó að lengri tími líði á milli stóru stökkanna. Augu hins frjálsa heims hafa galopnazt fyrir þessum stað- reyndum eftir innrásina í Afghanistan og síðustu níðingsverk sovézkra ráðamanna gegn andófs- fólki heima fyrir. íslenzk stjórnvöld hafa að sumu leyti gengið lengra í þá átt að vingast við sovézk yfirvöld á allra síðustu árum en aðrar ríkisstjórnir á Vesturlöndum. Menningarsátt- máli hefur verið gerður, þar sem reiknað er með margs konar samstarfi íslendinga og Sovét- manna. Útsendarar Sovétríkjanna hafa stöðugt verið að færa sig upp á skaftið hér, ýmist í gervi jarðvísindamanna, sem flækzt hafa um landið þvert og endilangt við „rannsóknir" sínar, eða gamallar íslenzkrar konu, sem að nafninu til er látin ritstýra fyrirlitlegu áróðursmálgagni Moskvustjórnarinnar á íslenzku handa íslenzk- um almenningi. Tugir sovézkra sendiráðsstarfs- manna fara allra sinna ferða um landið á sama tíma og hinir örfáu íslenzku sendiráðsmenn í Sovétríkjunum eru háðir ströngum ferðatak- mörkunum. Sovézkar herflugvélar fá heimild til að æfa lendingar á Reykjavíkurflugvelli og Keflavíkurflugvelli, þegar sovézkir telja sér það henta. Áhafnir sovézkra skipa fara hér um í hópum án nokkurs eftirlits á meðan íslenzkir farmenn eru sviptir ferðafrelsi í sovézkum höfn- um. Og þannig mætti lengi telja. Ójöfnuðurinn í þessum viðskiptum er hrikalegur. Síðustu ofbeldisverk Sovétstjórnarinnar eru greinilegt hnefahögg í andlit þeirra, sem hafa viljað vingazt við Sovétríkin, þar með talin ís- lenzk stjórnvöld. Þau eiga ekki að hafa minni manndóm til að Iáta andúð sína í ljós og mót- mæla en verkamenn á Keflavíkurflugvelli, sem hafa neitað að afgreiða sovézkar herflugvélar. Sovétmenn hafa sjálfir stórspillt grundvelli þeirra samskipta, sem tíðkazt hafa undanfarið. Framkvæmd þeirra á því að endurskoða. íslenzk stjórnvöld eiga að láta vanþóknun sína í ljós með því að endurskoða framkvæmd menningarsátt- mála við Sovétríkin, afþakka heimsóknir sov- ézkra herflugvéla, og láta þær sömu reglur gilda um sovézka diplómata og almenna borgara hér á landi og íslendingar þurfa að hlíta í Sovétríkjunum. 74
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.