Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 34
flug á vegum félagsins féllu
niður með farþegafjölda um
17.000.
Háleit markmið
Þrátt fyrir að flugfélögin séu nú
að berjast fyrir tilveru sinni, þá
eru þau samtímis að leggja
verulegar upphæðir í nýjar vélar
til að vera viðbúin þeim aukna
vexti íflugsamgöngum, sem þau
trúa ennþá að muni eiga sér
Hártoppar
Eölilegir, léttir og þægilegir. Auðveldir í hirðingu og notkun. Leitiö
upplýsinga og fáið góð ráð án skuldbindinga. Fyrsta flokks
framleiðsla sem hæfir jslendingum.
Akureyri: Rakarastofa Valda, Kaupvangi.
Vestmannaeyjar: Rakarastofa Ragnars.
Selfoss: Rakarastofa Leifs 0sterby.
Húsavík: Rakarastofa Rúnars.
KLIPPINGAR. PERMANENT, LITUN
hArsnyrtistofan
Dóróthea Magnúsdóttir
Torfi Geirmundsson
Laugavegi 24 II. hœð
Slmi 17144
stað um miðjan þennan áratug.
B.A. ætlar ekki að láta sitt eftir
liggja í þeim málum. Vonin er sú
að nýjar gerðir af þotum, stærri
og ódýrari í rekstri t.d. allt að
40% sparari á eldsneyti, muni
hjálpa félaginu aö rétta úr kútn-
um.
Mikil áhersla er lögð á að skapa
ný verkefni. Tala atvinnulausra
flugmanna hefur aukist stöðugt
vegna samdráttarins. Félagið
hefur undanfarin tvö ár þurft að
halda allt að 400 atvinnulausum
flugmönnum uppi með árslaun
upp í 20.000 pund, þar sem
gerðir samningar kveöa svo á
um.
Concorde ber sig
Gerry Draper, framkvæmda-
stjóri áætlunardeildar B.A.,
sagði nýlega aö félagið hygðist
efla Concorde starfsemina.
Benti hann á að á þessu fjár-
hagsári myndi Concorde skila
B.A. um 4 milljónum punda í
hreinar tekjur af Norður-Atlants-
hafsfluginu, og vonir stæðu til
aukningar 1981—82.
Ferðir með Concorde milli
London og New York eru nú 10
á viku, en mun fjölga í 14 í vor.
Önnur leiðin kostar nú 837 pund
(ca. 12.500 ísl. kr.) og nýtilkomið
,,stand-By" fargjald er 675 pund.
Einnig er B.A. með hugmyndir
um Mið-Austurlönd, Miami og
Lagos sem líklegar nýjar leiöir
fyrir Concorde.
Lán frá ríkisstjórninni
Um miðjan janúar sl. ákvað
breska ríkisstjórnin að veita
BRITISH AIRWAYS 85 milljóna
punda viðbótarlán. Nema þá
heildarlán frá ríkisstjórninni 304
milljónum punda á árinu
1980—81. Heildarlán eru orðin
um 800 milljónir, sem þýðir aö
vaxtagreiðslur á næsta ári gætu
farið yfir 100 milljónir punda.
Hið nýja lán mun gera félaginu
kleift að kaupa eldsneyti, borga
laun og leggja upp í kaup á nýj-
um flugvélum. Hins vegar þykir
ólíklegt að áðurnefnt lán og
önnur geti varió félagið gegn
þeim fyrirsjáanlegu erfiðleikum
sem flugfélög þurfa að horfast í
augu við næstu ár. ®
34