Frjáls verslun - 01.03.1981, Blaðsíða 44
30 rúmmetrar og 60 rúmmetrar, og
henta slíkir vöruflutningar einkum
ef um viðkvæman eða brothættan
varning er að ræða. Við leggjum
áherslu á að varan sé undir okkar
umsjá alla leió frá framleiðanda og
í íslenskt flutningsfar. Minnka
þannig líkur á skemmdum og
stuldi jafnframt því sem unnt er að
veita upplýsingar um hvar varan
er, hvenær bókuð, o.s.frv. Og síð-
ast en ekki síst bjóðum við þekk-
ingu sérfróðra manna sem þraut-
þekkja viðskiptin og vita nákvæm-
lega hverjar þarfir okkar eru, svo
allt gengur fljótt og auðveldar fyrir
sig.“
Auknir valkostir
íslenskra fyrirtækja
Margt í þeirri þjónustu sem
Steinn og fyrirtæki hans bjóöa er
nýnæmi í íslensku viðskiptalífi.
Vissulega hafa skipafélög og flug-
félög veitt — og veita — við-
skiptavinum sínum þá þjónustu að
sjá um flutning vörusendinga frá
verksmiðju í skipshöfn eða flug-
höfn erlendis. Tilboð þeirra eru
gerð í samvinnu viö skrifstofur
þeirra og umboðsmenn erlendis,
en með tilkomu Flutningsmiðl-
unarinnar hafa valkostir íslenskra
fyrirtækja aukist og geta þeir nú
leitað tilboða víðar en hjá þessum
aðilum og tekið því sem hagstæð-
ast er.
Þá hafa sölumenn nokkurra er-
lendra flutningsmiðlana komið
hingað af og til á undanförnum
áratug eða svo, en kostir þess eru
augljósir að hafa ábyrgan aðila,
íslenskt fyrirtæki, með þjónustu á
staðnum og í beinum tengslum við
víðtækt þjónustunet erlendis.
Meðal þeirra kosta sem Flutnings-
miðlunin býður er að vörusend-
ingin er í umsjón eins ábyrgs aóila,
en ekki tveggja eða fleiri, sem
hefur yfirsýn yfir flutninginn alla
leið frá verksmiðju til móttakanda
og veitir möguleika á styttri flutn-
ingstíma.
Náið samstarf við íslensk
skipafélög og flugfélög
Steinn lagði áherslu á að starf-
semi Flutningsmiðlunarinnar
byggðist á góðu samstarfi við ís-
lensk skiþafélög og flugfélög og
takmarkið væri að vinna með þeim
að því að auka hagræðingu í
flutningum. Hingað til kvað hann
Flutningsmiðlunina hafa komið
meira við sögu á fjarlægari leiðum
þar sem íslenskir innflytjendur
hafa áþreifanlega orðið varir viö
háan flutningskostnað og ýmiss
óþægindi. Hér taldi Steinn fyrir-
tækið bjóða upp á víðtækt flutn-
ingsnet og mjög samkeppnisfær
verð og þjónustu. Nefndi hann í
þessu sambandi lönd eins og
ítalíu, Spán, Austurríki, Frakkland
og Sviss og jafnvel Austurlönd
fjær. Þá hefði Flutningsmiðlunin í
auknum mæli séð um flutning frá
aðilum í Þýskalandi, Belgíu, Hol-
landi og Englandi og einnig í Dan-
mörku, Svíþjóð og Bandaríkj-
unum, en færri t.d. frá Noregi og
Finnlandi. Loks minnti hann á að
Flutningsmiðlunin byði að sjálf-
sögðu uþp á sömu þjónustu fyrir
Gissur Sigurösson
Nú er Tölvuskólinn að setja á
markað alíslensk forrit fyrir
örtölvur og eru þau aðlöguð
íslenskum viðskiptaaðstæðum.
Þá hafa nýjustu Commodore CBM
örtölvurnar, sem fyrirtækið selur,
tekið miklum framförum nýverið.
Hafa þær nú 32 K minni, diskadrif,
geymslugetu upp á Mega byte,
sem er þreföldun frá eldri tölvum,
prentara, sem skrifar 160 stafi á
sekúndu og búist er við að unnt
verði að nota hana til textavinnslu.
Viðskiptavinum fyrirtækisins frá
fyrri tíð standa einnig til boða
breytingar á sínum tölvum yfir í
notkun á íslenskum forritum. Ætti
það ekki að verða mjög kostnað-
arsamt þar sem þartilgeröir kubb-
ar fara hríðlækkandi á heims-
markaði.
Nú færist í vöxt að minni fyrir-
tæki taki örtölvur í þjónustu sína,
enda hafa þau síður bolmagn til
kaupa á stórum tölvum en stórfyr-
irtæki. Má þar nefna vélsmiðjur,
bílasala, pöntunarfyrirtæki og
einnig heimili.
Af íslenskum forritum, sem þeg-
ar liggja fyrir eru t.d. forrit fyrir
útflutning frá íslandi og dreifingu
vörunnar frá höfnum erlendis, en
hingað til heföu fyrirtæki nýtt sér
hana í minna mæli.
Varðandi viðtökur íslenskra við-
skiptaaðila sagði Steinn að hann
væri tiltölulega ánægður með
þær. Að vísu væri það svo að þó
ýmis fyrirtæki hefðu kynnt sér
þjónustu Flutningsmiðlunarinnar
og notfærðu sér hana að meira
eða minna leyti, hefðu margir ekki
enn gert sér fyllilega grein fyrir
hvaða þjónustu fyrirtækið hefði
uþþ á að bjóða. Þá níu mánuði
sem Flutningsmiðlunin hefði starf-
að á síðasta ári kvað hann þá hafa
séð um flutninga fyrir um 150
íslensk inn- og útflutningsfyrir-
tæki, og áfyrstu tveimur mánuðum
þessa árs hefðu þegar bæst við
nokkrir tugir nýrra viðskiþtavina. ®
sameiginlegt fjárhags- og við-
skiptamannabókhald, úttekt úr
tollvörugeymslu og fyrir eftirlit
meö lager. í vinnslu er m.a. forrit
fyrir launabókhald og til greina
kemur að gera forrit fyrir bónusút-
reikninga.
Fyrir utan að halda sýningar á
viku til hálfsmánaðar fresti allan
veturinn, heldur fyrirtækið nám-
skeið, samanlagt 20 klukkustundir
á mann, og hafa 420 manns sótt
þau síðan á miðju ári '79.
Er algengt að fyrirtæki kosti
starfsfólk á þessháttar námskeið,
og er um helmingur námskeiös-
gesta þannig til kominn. Aðrir
koma vegna þeirrar vaxandi skoð-
unnar aö á næstu árum verði æ
þýðingarmeira að bera nokkuð
skynbragö á tölvutækni í hinni
daglegu lífsbaráttu.
Með tilliti til hraðra framfara í
gerð örtalva, tilkomu alíslenskra
forrita, aukinnar viðgerða- og
leiðbeiningarþjónustu við við-
skiptavini auk námskeiöahaldsins,
telur fyrirtækið örtölvurnar eiga
eftir að ná mikilli fótfestu í íslensku
viðskiptalífi á næstunni. ®
Nýjung hjá Tölvuskólanum:
Alíslensk aðhæfð forrit
44