Frjáls verslun - 01.03.1981, Blaðsíða 67
Óli Tynes
Þeir eru orðnir nokkuð margir
staðirnir á landsbyggðinni sem
vilja fá einhverskonar stóriðju í
sína sveit. Húsavíkurkaupstaður
er meðal þeirra og þar binda
Með breyttum þjóðfélagsháttum
hafa bæjarfélögin stöðugt þurft að
leggja meira fé í allskonar félags-
lega þjónustu. Framleiðslugrein-
arnar hafa hinsvegar ekki vaxiö að
en í fyrra og það hlutfall tekna sem
varið er til þessara framkvæmda
hefur farið árminnkandi. Aukning
á þjónustuliðum hefur frá ári til árs
verið umfram aukningu tekjuliða,
L'rfsnauösyn að stórefla atvinnuvegina
Húsavík þarf stóriðju
menn mikiar vonir við pappírs-
verksmiðju sem finnskir aðilar
hafa sýnt áhuga á að standa að.
Bjarni Aðalgeirsson, bæjarstjóri,
sagði í viðtali við Frjálsa verzlun
að bæjarbúar væru einhuga um
að vilja verksmiðjuna. Hann lagði
þó þunga áherslu á að þetta mál
væri á frumstigi og mikið vatn ætti
eftir að renna til sjávar áður en
nokkur verksmiðja verði opnuð á
Húsavík.
En hvort sem það verður
pappírsverksmiðja eöa eitthvað
annað, er alveg Ijóst að það er
lífsnauðsynlegt fyrir Húsavík að fá
til sín einhverja stóra framleiöslu-
einingu. Annars verður fljótlega
stöðnun og þá er skammt í hnign-
un.
sama skapi og það er augljóst að
slíkt getur ekki gengið til lengdar.
Þaö er nú þannig búið aö atvinnu-
rekstri að það er ekki fýsilegt að
leggja út í slíkt, enda fækkar stöð-
ugt þeim einstaklingum sem gera
það. Þá verða bæjarfélögin að
leggja út í slíkt, enda mun í lögum
standa eitthvað á þá leið að
sveitastjórnir skuli tryggja þegnum
sínum atvinnuöryggi. Gallinn er
bara sá að í tekjustofnum sveitar-
félaga er ekki gert ráð fyrir miklum
framlögum til atvinnumála.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að
Húsavíkurkaupstaður verji kr.
2.720.00 til framkvæmda í at-
vinnumálum. Það eru 21% af tekj-
um og ekki ýkja slæmt hlutfall. En
það er samt einu prósenti minna
og það kann ekki góðri lukku aó
stýra.
Sitja ekki og bíða
Þótt Húsvíkingar bindi miklar
vonir við stóriðju fer fjarri því að
þeir sitji með hendur í skauti sér og
bíði eftir henni; þeir gera hvað þeir
geta til að auka fjölbreytni og
framleiðni atvinnufyrirtækja sinna.
i vor er von á nýjum togara til
Húsavíkur sem ætti að auka um
þriðjung eða fjórðung það hráefni
sem kemur þar á land, og tryggja
stöóugri atvinnu hjá Fiskiðjusam-
laginu. Þá er búið að tryggja að
nokkru leyti fjármagn til að byggja
dráttarbraut fyrir skip og bærinn
stendur einnig fyrir veiðarfæra-
gerð sem er í undirbúningi.
67