Frjáls verslun - 01.03.1981, Blaðsíða 42
Bátur Elisar Johnasson sem eyðir um 1000 lítrum minna á viku, en hlið-
stœðir bátar sem stunduðu sömu veiðar.
Volvo Penta
systurvélarnar
stórdraga úr
olíukostnaðinum
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að eitt aðalvandamál útgerðar-
innar á íslandi og raunar hvar sem er
í heiminum er hinn gífurlegi olíu-
kostnaður. Þegar hafa margþátta ráð-
stafanir verið gerðar til þess að draga
úr þessum kostnaði og ýmislegt
áunnist, en samt sem áður er hér um
kostnaðarlið að ræða sem er að sliga
mörg útgerðarfyrirtæki. Margar
vélaverksmiðjur hafa reynt að svara
þessari þróun með endurbótum á
framleiðsluvörum sínum, en árang-
urinn er að vonum misjafn. Ein
Volvo TA MD 120 b systravél.
helsta nýjungin sem fram hefur
komið á þessum vettvangi er frá
Volvo-verksmiðjunum í Svíþjóð, og
er þar um að ræða sex strokka línu-
byggðar díselvélar með forþjöppu og
eftirkælingu. Hafa vélar þessar
reynst einkar vel bæði sem systurvél-
ar og ein vél með viðeigandi aflsviði,
og orðið til þess að minnka olíu-
kostnað til mikilla muna.
Systurvélarnar frá Volvo Penta,
eru léttari og fyrirferðarminni en
tvær sjálfstæðar vélar og sparast
þannig dýrmætt rými í skipunum.
Mörg fiskiskip nota fullt vélarafl í
tiltölulega stuttan tima, t.d. þegar
verið er að sigla á miðin eða af mið-
unum, en í mörgum tilfellum þarf
minna vélarafl við veiðarnar sjálfar
og fiskileit. í þeim tilfellum bjóða
systurvélarnar upp á meiri mögu-
leika en ein vél, og þær eyða einnig
mun minni olíu en ein vél við sama
álag. En eitt atriði er þá ónefnt og er
það í rauninni ekki það veiga-
minnsta. Er hér átt við öryggið á
skipunum, þar sem nægjanlegt er að
önnur vélin gangi til þess að skipið
geti farið ferða sinna. Auk þess hefur
systurvélin einnig fleiri aflúttök fyrir
aukabúnað, svo sem dælur, þjöppur,
rafala og spil.
Þótt það sé fyrst nú sem slíkar
systurvélar eru verulega að ryðja sér
til rúms í fiskiskipum, er fengin mikil
reynsla á slíkt kerfi, þar sem slíkar
Volvo Penta vélar hafa verið í ferj-
um, tankskipum og togskipum í
mörg ár. Eru þeir sjómenn sem
fengið hafa slíkar vélar í báta sína
undrandi á hagkvæmni þeirra sem
fylgir þeim og má þar vitna í orð
gamalreynds sænsks skipstjóra,
Elisar Johnassonar, sem gerir út
fiskibátinn m.b. Ekfors frá Fiskeback
í Svíþjóð. Hann skipti á gömlu vél-
inni í bátnum og AMD 120 B systur-
vél með tvöföldum gír, og eftir
nokkra reynslu hafði hann þetta að
segja:
„í samanburði við sjómenn á
samskonar bátum sem veiða á sömu
miðum og ég, nota ég 1000 lítrum
minna af eldsneyti á viku en þeir.
Aðeins eldsneytissparnaðurinn
greiðir vexti og annan kostnað af
nýju vélinni, auk þess sem minn bát-
ur gengur miklu betur en hinir bát-
amir.
Það eru líka út af fyrir sig mikil
meðmæli með þessum vélum að
sænska slysavarnafélagið keypti
fyrstu Volvo Penta systurvelina árið
1955. Síðan þá eru slíkar vélar
komnar í flesta báta félagsins, og
hefur Volvo nú nýlega sett niður
TAMD 120 B vélar með tvöföldum
gír í nýjan bát slysavarnafélagsins,
Olof Wallenius, en bátur þessi verð-
ur væntanlega sjósettur og tekinn í
notkun nú í sumar.
Einn Porsche
á mann!
Menn brostu í kampinn þegar
vestur-þýsku Porsche-versmiðjurnar
kynntu nýja gerð Porsche-bifreiða
fyrtr skömmu, Porsche 928 Targa
Sedan. Ekki að bifreiðin væri bros-
leg, þvert á móti, heldur vegna þess
að sá er kynnti bifreiðina lét þau orð
falla að Porsche 924 væri kjörbifreið
húsmóðurinnar á heimilinu, Porsche
911 SC væri bifreið fyrir soninn og
Porsche 928 Targa Sedan væri bif-
reið fyrir heimilisföðurinn. Lét ein-
hver viðstaddra orð falla um að það
væri þá eins gott að heimilisfaðirinn
ætti líka olíulindir, því að enginn
þessara bifreiða er af ódýrara taginu,
þótt ekki sé kveðið fastar að orði.