Frjáls verslun - 01.03.1981, Side 40
Rannsóknarnefnd
annast
vettvangskönnun
Volvo-verksmiðjurnar hafa í lang-
an tíma lagt mjög mikið upp úr ör-
yggi Volvo-bifreiðanna, og hafa
þessar bifreiðar raunar fengið á sig
orð fyrir hve traustar þær eru, og hve
vel er hugsað um öryggi ökumanns
og farþega. Eru það ófáar Volvo-bif-
reiðar sem fórnað hefur verið við
ýmsar tilraunir og þætti sjálfsagt
mörgum sárt að sjá hverja bifreiðina
af annari eyðilagða í tilrauna-
árekstrum, eins og gert er á vegum
verksmiðjunnar árlega.
En þótt slíkar tilraunir séu mikils-
verðar og leiði margt í ljós sem verð-
ur til endurbóta á bif reiðunum og auki
öryggi ökumanns og farþega, þá láta
Volvo-verksmiðjurnar ekki staðar
numið við svo búið. í tíu ár hefur
verið starfandi deild hjá verksmiðj-
unum sem hefur það verkefni með
höndum að rannsaka öll umferðar-
slys þar sem Volvo-bifreiðar koma
við sögu. Rannsóknarmenn þessir
þeytast um landið þvert og endilangt
Milljónir kílómetra
og ómæld tonn í
áratugaþjónustu
Þróttar
„Sjálfsagt eiga Volvo bílar mill-
jónir kílómetra að baki í okkar þjón-
ustu og sjálfur átti ég einu sinni 85
gerðina í nokkur ár, ákaflega lipran
skjöktara, sem ekki þætti mikill bóg-
ur miðað við kröfurnar nú“, sagði
Herluf Clausen, formaður Vörubíl-
stjórafélagsins Þróttar. Hann ók
vörubíl í 20 ár þar til hann tók við
formennsku fyrir þrem árum.
„86-an þótti ákaflega lipur bíll
þegar hann kom, en um tíma dalaði
svolítið gengi Volvo þar sem aðrir
kraftmeiri bílar náðu vinsældum. En
svo kom 88-an og svo tían svo Volvo
er ekki á neinu undanhaldi í okkar
flota“, sagði hann. Floti Þróttara tel-
ur nú um 170 til 180 bíla og eru
meðlimir um 200. Þau merku tíma-
mót eru nú í sögu félagsins að það er
Þeir þeytast um Svíþjóð þvera og endilanga og semja skýrslur um óhöpp þar
sem Volvo-bifreiðar komu við sögu: Hans Norin, Christer Gustafsson,
Lennart Svenson, Bengt Kjelleberg og Kjell Högström.
til þess að kanna vettvang af eigin
raun, skoða bifreiðarnar sem lent
hafa í óhöppum gera um þær skýrsl-
ur sem síðar er unnið úr í öryggis-
deild fyrirtækisins. í Svíþjóð er eðli-
lega gífurlegur fjöldi Volvo-bifreiða,
en þær lenda í minni og stærri
óhöppum og slysum, eins og gerist og
gengur. Frá því að rannsóknardeild
þessi var stofnuð hefur hún kannað
um 1000 óhöpp þar sem Volvo-bif-
reiðar komu við sögu, og ýmis lær-
dómur hefur verið af þeim dregin.
Þannig má rekja þriggja punkta ör-
yggisbeltin til þessara athugana, en
Volvo-verksmiðjurnar voru einna
fyrstar til þess að setja slík belti í bif-
reiðar sínar. Ótal önnur atriði hafa
verið tekin til umfjöllunar í fram-
haldi af rannsóknum þessum, og
endurbætur verið gerðar á Volvo-
bílunum í samræmi við þær.
50 ára í ár. Haldið var upp á það með
miklu afmælishófi 13. febrúar sl. en
hinn eiginlegi afmælisdagur er talinn
vera 9. apríl.
„Það er nú með Volvo eins og aðra
bíla að hverjum þykir sinn fugl fagur.
Á meðan menn eiga Volvo eru þeir
ákaflega hrifnir af Volvo og á meðan
þeir eiga einhvern annan bíl, eru þeir
ákaflega hrifnir af honum, en það
má hiklaust segja að Volvoinn hafi
þjónað hér vel og geri enn“, sagði
Herluf að lokum.—