Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1981, Qupperneq 49

Frjáls verslun - 01.03.1981, Qupperneq 49
Matreiðslumaðurinn Hilmar Jónsson hittl naglann á höfuðið þegar hann vann að því að hengja upp íslenzku myndirnar á Hotel Aerogolf. — Eruð þið jafnan tilbúin að fara af stað með sýningar eða kynningar, sem eru til staðlaðar í ýms- um útgáfum í ferðatöskum eða gámum, þannig að til þeirra megi grípa fyrirvaralítið? Hulda: Að mínu mati hefur ekki nóg verið gert til að undirbúa hlutina á þann hátt. Það er hægt að koma á vissri stöðlun í þessum efnum. Þó það væri ekki annað en að hafa tilbúnar fréttatilkynningar og ýmis grundvallargögn önnur. Hilmar: Við geymum að vísu ekki sýningarstúlk- urnar í ísskáp eða gámum. Sveinn: Nei. Stöðluninni eru viss takmörk sett þó að æskilegt væri að hafa sýningar tilbúnar í „settum". En það er hægt að byrja á því að setja saman lista með öllum þeim atriðum, sem hafa þarf með í dæminu, þegar sýning er búin til. Svona ,,prógramm'‘ eða ,,tékklisti“ er alveg nauðsynlegt. Þar yrðu talin upp 50 eða 100 mikilvæg atriði eftir umfangi sýningarinn- ar. Hilmar: Mér finnst skorta stööluð eyðublöð, sem búið væri að fylla út heima og hægt væri aö afhenda tollyfirvöldum þegar við flytjum vörur inn í við- komandi land með því fororði að dótið fari allt út úr landinu aftur, þegar sýningin er yfirstaðin. Menn sem koma í þessum erindum heim til íslands hafa allt klárt. Við erum sífellt í taugaspennu að fara með draslið í gegnum toll, oft matvörur, sem eru mjög undir smásjá tollgæzlu hvarvetna. Hulda: Hjá útflutningsráðinu í Noregi er sérstök deild sem aðstoðar útflytjendur að þessu leyti. Þeim eru veittar allar upplýsingar um tollareglur. Þeir fá aðstoð við uppsetningu sýninga o.s.frv. Kunnáttu- menn vinna þessi verk fyrir útflytjendurna. Við hjá Útflutningsmiðstöðinni heima höfum aldrei haft bol- magn til að sinna þessum þætti. — Fylgir því mikil taugaspenna að standa fyrir svona kynningum? Hilmar: Það er alltaf mjög spennandi. Maður veit aldrei, hvernig tekið er á móti manni í tollinum og hvað aðrir á staðnum eru reiðubúnir að leggja mikið af mörkum og aðstoða. Oft er það ævintýri líkast hvernig úr rætist. Þetta er taugatrekkjandi á stundum og áreiðanlega ekki fyrir alla að standa í þessu. Sveinn: Það myndast alltaf spenna þegar undir- búningur og uppsetning er í fullum gangi á síðustu mínútum áður en sýningin byrjar. Og undirbúningi verður aldrei lokið fyrr en tjaldið er dregið frá. Og það má með sanni segja, að stundum gerast hlutirnir hjá íslendingum í útlöndum á ævintýralegan hátt. Þegar á reynir eru engir jafnstórbrotnir sér- fræðingar í aö ,,redda“ hlutum og íslendingar. Þeir geta talað sig í gegnum tollmúrana og öryggisgæzlu á flugvöllum á þann hátt, sem fáir leika eftir. Eins og verða vill geta orðið óhöpp eða ,,slys“ hjá þeim sem fara með íslenzkar sýningar til útlanda. Þannig kom pappakassi með ullarflíkum sýningarstúlknanna ekki fram einu sinni á flugvelli erlendis. Hringt var heim til Islands í dauðans ofboði. Og viti menn. Kassinn stóð á gólfinu í afgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli. Nú voru góð ráð dýr. Ekkert flug á næstunni til viðkomandi lands. Ein leið var þó fær, ef margir hjálpuðust að. Aö senda pakkann með næstu vél til Kaupmannahafnar og þaðan með annarri vél á áfangastaðinn. Starfsmenn Flugleiöa og íslenzkir sendiráðsmenn með diplómatapassana á lofti voru mættir á tveim flugvöllum úti í löndum til að taka á móti pappakassa frá Islandi, hlupu með hann á milli flugvéla, fengu löggæzlumenn í fylgd með sér í gegnum toll og óku svo á diplómatískum ofsahraða á sýningarstaðinn. Þetta gekk og allt fór vel að lokum. Kassinn kom rétt í þann mund er sýningin hófst. ® 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.