Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 75
Hvað kostar að læra að fljúga
Þeir eru furðu margir, sem hafa velt því fyrir sér að læra að fljúga, en ekkert
gert í málinu. Svo vill til að flugnám er eitt af því fáa, sem er ódýrara á íslandi en
víða annarsstaðar. Það sem ef til vill heldur aftur af mörgum er tíminn. Hér á
landi er hægt að læra flug á skömmum tíma, ef veður leyfir, en venjulega tefur
veður verulega fyrir, þó að menn eigi fé til að læra á skömmum tíma.
Samkvæmt reglum Flugmálastjórnar þarf 20 flugtíma fyrir einliðapróf, og 40
flugtíma fyrir einkaflugpróf eða A-próf. Það próf veitir réttindi til að fljúga
hvernig flugvél sem er, án þess að taka gjald fyrir. Eftir sem áður verða menn aö
læra á hverja tegund flugvélar fyrir sig og taka á hana próf. Það er þó venjulega
vandalítið þegar um er að ræða litlar flugvélar. Ekki mega menn með einka-
flugpróf fljúga í myrkri eða skýjum.
Flugskólarnir hafa hinsvegar sett sér strangari reglur um flugtíma og ætlast
venjulega til að menn fljúgi 60 til 70 tíma fyrir A-próf. Þá verða menn að taka
bóklegt námskeið. Það tekur nú þrjá mánuði með 2 tíma kennslu aó kvöldi, 5
daga vikunnar. Á því námskeiði eru kennd fimm fög, flugeðlisfræði, veðurfræði,
vélfræði, siglingafræði og flugreglur.
Kostnaður við námskeið, sem nú stendur yfir er 2.000.- kr. Gögn og búnaður
geta kostað 500,- til 1.000.- kr.
Kostnaður við flugnámið sjálft er á að giska 300 krónur flugtíminn og er sama
gjald fyrir að fljúga með og án kennara. Þetta verð er nú í gildi hjá flugskóla
Helga Jónssonar og hefur ekki breyst frá því í haust. Búast má við að það
breytist með vorinu. Þegar 10 tímar eru keyptir í senn er veittur 10% afsláttur.
Kostnaður við flugið er miðaður við tveggja manna flugvél, Cessna 150 eða
hliðstæða. Þessi kostnaður er því 18 til 21 þúsund krónur eftir tímafjölda, en
hann fereftirýmsu.
Til að fá atvinnuflugpróf þarf 200 flugtíma. Þá fá menn leyfi til að vera að-
stoðarflugmenn í farþegaflugi, fljúga útsýnisflug og fleira, en þurfa 500 flugtíma
til að stjórna flugfari með farþega í áætlunar- eða leiguflugi.
Flugnám er nokkru ódýrara í Bandaríkjunum en hér. Það er hinsvegar mun
dýrara í nágrannalöndum í Evrópu, eins og til dæmis Svíþjóð. Þar þarf 40 tíma til
að fá A-próf. Flugtíminn kostar 320 til 450 krónur og fer eftir því hvort flogið er
með kennara eða án. 40 flugtímar kosta á að giska 16 þúsund krónur, en
almennt þarf að minnsta kosti tíu tímum meira, og er þá kostnaður orðinn
nálægt 20 þúsund krónur. Reiknað er með að námskeið, bækur, kort og annar
búnaður kosti 5 til 6 þúsund krónur.
Flugnám er ódýrara í Bandaríkjunum. Þar kostar flugtími í kennsluflugvél 200
til 250 krónur og kennari á að giska 80 krónur. Heildarkostnaður á að giska 11
þúsund, auk námskeiðs og gagna. Algengt er að skólar bjóði heildarverð fyrir
að kenna undir einkaflugpróf og má nefna sem dæmi skóla í Florida, sem býður
41 flugtíma og kennslu, námskeið, bækur og gögn auk læknisskoðunar fyrir
13.400 kr. Öll kennslan ferfram áfjórum vikum.
En fleira en verð kemur til álita. Það gerir ekki sama gagn að fljúga á sól-
skinsdögum á Florida, þar sem lítið er um vinda, nema í fellibyljum, og að fljúga
í strekkingi og sviftivindum á íslandi. Þá ber að hafa í huga að margir flugskólar
erlendis nota eigin flugvelli og nemendur fá ekki reynslu í að umgangast al-
menna flugumferð, eins og til dæmis í Reykjavík. Loks er nauðsynlegt að athuga
vel hvort öll lendingargjöld eru innifalin í verði, en þau eru engin fyrir kennslu-
• flugvélar hér á landi.
75